AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Blaðsíða 49
Stígagerð á Fákssvæðinu.
leiðir á milli borgarhverfa. Má þar nefna samfellt stíga-
kerfi allt frá Ægissíðu um flugvallarsvæðið inn Foss-
voginn og upp í Elliðaárdal (þegar brúin sem verið
er að byggja yfir Kringlumýrarbraut verður tilbúin)
og frá úthverfunum niður í miðborgina. Við þurfum
líka að hugsa fyrir tengslum á milli sveitarfélaganna,
þannig að hægt sé með góðu móti að hjóla og ganga
og hlaupa eftir öruggum leiðum allt frá Hafnarfirði
og í Mosfellsbæ.
UMFERÐARÖRYGGISÁÆTLUN
Á vegum Umferðarnefndar borgarinnar hefur verið
unnin og er nú til umfjöllunar, umferðaröryggisáætlun
fyrir Reykjavík, bæði tölfræðileg úttekt á slysum í
Reykjavík og fjárhags- og framkvæmdaáætlun. Og
hjá sömu nefnd er verið að vinna að fjölgun og bættri
útfærslu á svæðum þar sem hámarkshraði er 30 km.
Sérstök nefnd um hjólreiðamál er að störfum og nú
verða hjólreiðar í fyrsta sinn virkur þáttur í umferðar-
kafla aðalskipulags.
Og jafnvægið eða jafnréttið mikilvæga á milli allra
tegunda umferðar þarf líka að fela í sér að göngu-
og hjólreiðafólk sé ekki látið leggja á leið sína langar
lykkjur til að komast yfir umferðaræðar. Það er mun
auðveldara fyrir bílinn að taka á sig króka.
STRÆTÓ - HINN NAUÐSYNLEGI HLEKKUR
En lykillinn að því eftirsótta jafnvægi á milli umferðar-
þátta sem klifað hefur verið á í þessari grein eru
bættar almenningssamgöngur. Nýtt og bætt leiða-
kerfi hefur verið samþykkt í stjórn SVR og því þarf
að hrinda í framkvæmd. Setja verður langtímamark-
mið og bæta þjónustuna ár frá ári þar til takmarkinu
er náð. Rjúfa þarf vítahringinn sem við höfum verið í
lengi - að bæta aðstæður fyrir bílanotendur á sama
tíma og dregið var úr þjónustu SVR, með þeim afleið-
ingum að farþegum snarfækkaði og einkabílaumferð
jókst verulega. Það er núna fyrst sem bílum fækkar
og farþegum SVR fjölgar. Þá þróun má raunar frekar
rekja til bágborins efnahags fólks, m.a. vegna vax-
andi og viðvarandi atvinnuleysis, en til aðgerða
borgaryfirvalda.
Fylgjast þarf með nýjungum í tækni, s.s. eintein-
ungum og sporvögnum sem sums staðar eru þeim
hæfileikum gæddir að þeir mega fara út af sporinu
og eru þá díselknúnir.
LESIÐ SÍÐASTA HEFTI ARKITEKTÚRS OG
SKIPULAGS
í síðasta hefti þessa tímarits eru tvær greinar sem
vert er að skoða varðandi nýjatækni. Önnur um spor-
47
Ljósm: Ólafur Sæmundson.