AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Qupperneq 55
FORKONNUN A HAGKVÆMNI
LÚPÍNUIÐNAÐAR Á SUÐURLANDI
Verkefni þetta er mjög umhverfisvænt. Hér
er um þaö aö ræða aö rækta eyðisanda
og breyta í frjósöm lönd. Afuröirnar eru
mjög umhverfisvænar, þ.e. umhverfis-
vænteldsneyti, lífrænt próteinauðugtfóðurog lífrænn
áburður. Þessar vörur gætu verið undirstaða um-
fangsmikils iðnaðar og búskapar á íslandi. Lífrænn
áburður er forsenda lífræns búskapar á íslandi.
Lúpínuræktin er hagkvæmur kostur fyrir bændur og
lúpínuhráefni góður kostur fyrir verksmiðju eins og
hér er um rætt. Það stafar af því að ekki þarf áburð
til ræktunarinnar og lúpínan er próteinauðug. Þá er
við þetta að bæta að jarðgufan er miklu ódyrari kostur
en gufa framleidd í kötlum.
Við sem þetta verk höfum unnið trúum því að þetta
sé stórkostlegur möguleiki til að auka verðmætasköp-
un í sveitum á Suðurlandi.
UMHVERFISMÁL
Undanfarin ár hefur í vaxandi mæli verið rætt um um-
hverfismál. Stór þáttur í þeirri umræðu er aukin loft-
mengun sem stafar að verulegu leyti af útblæstri
ýmissa véla. Þessi útblástur samanstendur aðallega
af koldíoxíði og svo ýmsum efnum sem fyrirfinnast í
eldsneytinu. Eldsneytið er að mestu sótt í djúp jarðar,
þar sem hráefnin finnast uppsöfnuð, og eru því efnin
sem eftir verða við bruna hrein viðbót við andrúms-
loftið. Hin svokölluðu gróðurhúsaáhrif, þar sem spáð
er vaxandi hitastigi lofthjúpsins, eru vaxandi áhyggju-
efni víða um heim.en þau stafa af auknu hlutfalli kol-
díoxíðs í andrúmsloftinu. í kjölfar umhverfisráðstefn-
unnar í Río des Janeiro 1994 skuldbatt ríkisstjórn
íslands sig til þess að framleiðsla á koldíoxfði á íslandi
yrði ekki aukin fram til aldamóta.
Umhverfismál eru alls staðar að fá meira vægi og er
hugtakið sjálfbær þróun að verða almennt viðurkennt
markmið. Þetta veldur því að víða um heim eru menn
að leita sjálfbærra lausna varðandi eldsneyti og
minnkun loftmengunar. Sjálfbær lausn varðandi elds-
neyti hlytur að byggjast á því að ekki sé meira tekið
úr náttúrunni en látið er aftur í hana. Það er því sívax-
andi áhugi á framleiðslu lífrænna eldsneytisgjafa og
eru þar fremst í flokki etanól og metanól. Etanól er
flestum vel kunnugt því þess er gjarnan neytt í
áfengisformi, en það er einnig mikilvægt hráefni til
iðnaðar og sem eldsneyti.
ETANÓL SEM ELDSNEYTI
Etanól hefur verið notað f áratugi sem eldsneyti á
bifreiðar í Brasilíu og víða í Bandaríkjunum er það
blandað bensíni og kallast þá blandan gasohol.
Reyndin hefur verið sú að þetta eldsneyti er allt
framleitt úr gróðri og eykur því ekki koldíoxíð í and-
rúmsloftinu. Þetta er gert til að minnka mengun og
hefur stjórn Clintons forseta barist fyrir löggjöf um
nota gasohol eða ígildi þess um gjörvöll Bandaríkin.
Etanól er hægt að framleiða úr kolum eða olíu, en
lífrænt er það framleitt með gerjun úr sykrum og er
gerjunarvökvinn eimaður. Þegar etanóli er brennt
myndast koldíoxíð og vatn. Söluform þess sem
eldsneyti eða íblöndunarefni er ýmist með 95% eða
99% styrkleika.
Sjálfbær lausn varðandi eldsneyti hlýtur að byggjast
á hagkvæmnisjónarmiðum, því annars mundu elds-
neytisframleiðendur og neytendur hafna henni.
FRAMLEIÐSLA ETANÓLS
Framleiðsla etanóls hefur aukist mjög í heiminum
undanfarin ár. Stöðugt er verið að byggja nýjar verk-
smiðjur og skipuleggja nýjar. Miklar framfarir hafa
verið í framleiðslutækni etanóls og hafa þær bæði
beinst að gerjunar- og eimingartækni. Hráefni til
gerjunar geta verið margvísleg. Þekkt er gerjun úr
sykri, trjáviði og pappír. Sykrur geta verið bæði af
svokallaðri hexosa- eða pentosagerð. Þar til nýlega
þurfti tvö gerjunarþrep til að gerja báðar gerðirnar.
Nú hefur stofnun (National Renewable Energy Labo-
ratory (NREL)) á vegum bandaríska orkumála-
ráðuneytisins tekist að framleiða nýjan geril með því
að breyta erfðavísum í þekktum gerli og getur hann
gerjað báðar gerðirnar samtímis. Þetta gerir kleift
að nýta margvísleg og mun ódýrari hráefni en áður
og gerir framleiðslu etanóls mun ódýrari en áður.
Heimsmarkaðsverð er núna fyrir 99% etanól kr 27/
lítra.
53
ÁSGEIR LEIFSSON, BALDUR LÍNDAL