AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Page 58

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Page 58
Verkun á henni yrði svipuð og á súrheyi. Hagkvæm- ast væri að dæla hökkuðu lúpínunni um pípu til verk- smiðju. VERKSMIÐJA Ræktun lúpínu ætti sér yfirleitt stað á mjög ódýru landi og þarf lítinn tilkostnað við ræktunina (engin áburðar- gjöf). Ræktun lúpínu og uppskera gæti því verið ódýr kostur við hráefnisöflun fyrir etanólverksmiðju. Verksmiðja sem byggði á lúpínumauki sem hráefni gæti sennilega framleitt auk etanólsins, fóður úr próteininu, áburð úr steinefnunum, lignin og alka- loida. Fóðrið yrði verðmætara við gerjunina þar eð gerillinn og tilheyrandi vinnsla myndi umbreyta pró- teininu frá grænmetispróteini í bakteríuprótein. Hagkvæmni stærðarinnar er veruleg í flutningum á hráefni og gufu með pípulögn. Ennfremur er hag- kvæmt að vera með tiltölulega stóra geymslu- og gerjunartanka. Starfsmannahald er einnig mun ódýr- ara í stærri verksmiðju. Athuganir benda til að hagstæðara væri að staðsetja eimingarverksmiðju hjá háhitasvæði fremur en við höfn. Hægt væri að flytja etanólið með grannri leiðslu niður að höfn. í framleiðslunni kæmi lúpínumauk aðflutt t.d. í pípu- lögn og berst í safnþrær. Undirbúa þarf lúpínumauk- ið annaóhvort með svokallaðri gufusprengingu og ensým meðhöndlun eða með sýruhydrun. Ekki er gert ráð fyrir að alkaloídarnir séu hindrun fyrir gerj- un. Grófir reikningar benda til að það væri mögulegt að dælalúpínumaukifrát.d. Mýrdalssanditil Hveragerð- is (150 km vegalengd) fyrir kostnað sem næmi kr 0,75 á kg af þurrefni. Þurrefniskostnaður við verk- smiðju gæti þannig verið innan við kr 4,00/kg. Hugs- anlega væri hagkvæmt að leiða lúpínumaukið út í skip fyrir strönd og flytja það með því til verksmiðju til að byrja með. Afurðir verksmiðjunnar væru lífrænar. Próteinið er verðmætt fóður, steinefnin henta vel til áburðar og ligninið er hægt að nýta til efnaiðnaðar eða til brennslu eða sem fyllingarefni í áburð. Alkaloidarnir styrkja vöxt plantna, henta til verndar þeirra frá búfjár- og skordýraágangi og til lyfjagerðar. í nútíma etanólverksmiðjum sem vinna úr korni er talið að einungis þurfi 6,5 tonn af gufu til að framleiða 1.000 lítra af etanóli. En þá er töluverð fjárfesting í endurnotkunarbúnaði á gufunni og til gufuframleiðsl- una. í íslenskri etanólverksmiðju, sem ynni úr lúpínu yrði gufunokun mun meiri, en fjárfestingarkostnaður að sama skapi minni. Það hefur komið í Ijós að sennilega hafa nýlega verið teknar í notkun tvær lúpínuverksmiðjur. Er önnur í Grikklandi en hin í Portúgal. Þýskt fyrirtæki hefur annast tæknivinnu varðandi þetta verkefni, sem hefur verið styrkt af Evrópusambandinu. Þetta lúpínuverk- efni byggist á úrvinnslu á lúpínufræjum af plöntunni „Lupinus Albus". Hráefnisþörf þeirra er 2.600 tonn af lúpinufræi á ári. Þessi planta er einær og ber stór fræ (ámóta stór og maísbaunir) og gefur mikla upp- skeru af þeim. Þessi planta er ræktuð í Grikklandi, Þýskalandi, Spáni og Portúgal.Hið þýskafyrirtæki er núna að byggja lúpínuverksmiðju í Þýskalandi. Vinn- sla er með þvotti með köldu vatni (ekki gerjun). Helstu afurðir eru alkaloidar og vörur úr þeim, áburð- arvökvi, próteinvörur ýmiskonar, ýmist til manneldis eða skepnufóðurs. Það væri hægt að hagnýta þekk- ingu úr þessum rekstri við úrvinnslu úr þessu verkefni. Baldur Líndal sótti nýlega ráðstefnu sem haldin var í Bandaríkjunum og fjallaði um stöðu gerjunartækn- innar. Hann heimsótti við það tækifæri stofnunina sem hafði framleitt hinn nýja geril. Nú þegar er verið að setja af staó 8 verkefni sem varða stofnun lítilla verk- smiðja (20.000 tonna) í Bandaríkjunum, sem munu vinna úr ýmiskonar trefjaríkum efnum, svo sem trjá- viði, pappír, sorpi og grasi. Það eru nú þegar nokkur hundruð hektarar af véltækum lúpínuökrum sunnan- lands. MARKAÐUR ETANÓL Aðalmarkaðarnir fyrir etanól eru í Bandaríkjunum og Evrópusambandinu. Verðlag á etanóli er mun hærra hjá Evrópusambandinu, en þar er etanólið flokkað sem landbúnaðarvara og framleiðslan sem land- búnaðarframleiðsla og eru háir verndartollar (35%). Verð í Bandaríkjunum er um $ 500/tonn, en þar eru litlir innflutningstollar. FÓÐUR Skortur er á próteinríku fóðri í heiminum. Próteinstyrk- ingin fer eftir hve vel aðskilnaðurinn tekst í fram- leiðslunni. Ef um góðan aðskilnað er að ræða þá yrði próteinstyrkurinn yfir 50%. Þetta yrði hráefni fyrir ýms- ar fóðurblöndur. Talið er að um $ 300/tonn væri hægt að fá fyrir fóðrið, en það er mun verðmætara fyrir það að vera bakteríumassi en ekki grænmetisfóður. 56

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.