AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Qupperneq 74

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Qupperneq 74
TRAUSTI VALSSON SKIPULAGSFRÆÐINGUR VIÐ ÞURFUM LEIÐSOGUGOGN UM LENDUR FRAMTÍÐARINNAR Oöru hvoru í sögu þjóða eöa heimsálfa gerast grundvallarbreytingar á þeirri aðstöðu og þeim möguleikum sem mönnum eru búnir. Stærsta umbreytingin sem hefur orðið á seinni tímum varð með vél- og iðnbyltingunni í Evrópu við upphaf síðustu aldar. Grunnurinn var beislun gufuaflsins til að knýja áfram skip, lestar og vélar og lyfta þannig líkamlegu erfiði af fólki sem og að opna fyrir áður óþekkta möguleika í framleiðslu og samskiptum. Eftir því sem leið á 19. öldina, tók ávinningurinn að nýtast okkur íslendingum í síauknum mæli, þvf aukin velmegun í Evrópu leiddi til aukinnar eftirspurnar á fiski og sauðakjöti. Með nýjum eimskipum komust á reglulegar siglingar allt árið og gátum við komið söluvöru okkar á þessa góðu markaði með öruggum hætti. Þegar leið að aldamótum var framsýnum mönnum orðið Ijóst, að iðn- og tækniþróunin var að opna okkur leið út úr aldalangri eymd og einangrun og að jafnvel eldgos og haffsár sem komu í aldarlokin, myndu litlu Hugmyndin um skipulagsfræðinginn í einleikshlutverki er að víkjafyrir hugmyndinni um skipulagsmann sem einn þeirra sem búa til leið- sögugögn til þess að auðvelda stjórnmálamönnunum leiðsöguhlut- verk sitt. breyta þar um. Skáld og menntamenn lögðust á sveif með þessari jákvæðu sýn, sungu vélinni, tækninni og fossaflinu lof og nefndu tímarit sitt eftir töfratæki samtímans; eimreiðinni. Nú er enn komið að aldahvörfum, því að ný öld og nýtt árþúsund, er að ganga í garð eftir fimm ár, og eins vegna þess, að heimurinn stendur á tímamótum íýmsum skilningi:Kalda stríðinu er lokið, ný ríkjasam- bönd eru að myndast, Gatt-samningurinn mun leiða til frjálsari heimsviðskipta svo dæmi séu nefnd. Allt þetta, og fleira til, mun breyta stöðu íslands í heiminum er varðar möguleika á sviði alþjóðamála og viðskipta og eins er tekur til hvaða atvinnuvegir munu helst ná að dafna í þessu nýja ytra umhverfi þjóðmálaþróunarinnar. Til þess að átta okkur á hvað bíður okkar með öllum þessum breytingum þurfum við að láta gera margs konar úttektir, líkar þeim sem Háskólinn gerði fyrir ríkisstjórnina og tók aðallega til líklegrar stöðu íslands í Evrópuþróun framtíðarinnar. Greinarhöfundur gaf út bók með Alberti Jónssyni, stjórnmálafræðingi, um þessi málefni vorið 1995. Nefnist hún: „Við aldahvörf Staða íslands í breyttum heimi.“ Það eru slík „leiðsögugögn um lendur framtíðarinnar", sem við þurfum nú, þegar svo miklar breytingar eru að verða á ýmsum ytri skilyrðum þjóðfél- agsþróunarinnar. Með slík gögn í höndunum eiga t.d. stjórnmálamenn, bændur, fiskverkendur og iðnrekendur auðveldara með að átta sig á hvaða at- vinnugreinar og starfsemi eiga bestu framtíðarmöguleikana við hin breyttu skilyrði. Svona skipulags- og skýrslugerðarvinna er ekki í miklu uppáhaldi hjá íslending- um sem eru vanir því frá aldaöðli að bregðast þá fyrst við, þegar gefur á sjó eða gefur þurrkinn. Er þetta gjörólíkt þeim skipulögðu vinnubrögðum sem mótað hafa starfshætti hjá akuryrkju- og 72
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.