AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1998, Blaðsíða 23
KJRNILUNDUR
þróun sýningarsvœðis
egar fólk kemur í fyrsta skipti inn í
Fornalund, segir þaö oft aö hann sé
hrein paradís ájöröu. Fallegur trjálund-
ur umlykur garðinn. Hæstu trén í dag
eru u.þ.b.10 m há. Þaö var um miöja
öldina aö Jón Dungal, sem bjó á bæn-
um Hvammi þar sem Fornilundur er nú, lagði
grunn að trjálundinum. í Fornalundi er sýnt hvernig
leysa má ýmis algeng vandamál í göröum og úti-
vistarsvæðum á fjölbreyttan hátt.
Þaö var áriö 1983 á iðnsýningu í Laugardalshöll
aö samkeppni var haldin á vegum BM Vallá.
Samkeppnin var um þaö hvernig hægt væri aö
nota u-steina, sem þá voru nýjung í þeirra fram-
leiöslu. Þessi samkeppni var öllum opin. Þeir sem
unnu samkeppnina voru tveir nýútskrifaðir lands-
lagsarkitektar. í framhaldi aö þessari samkeppni,
voriö 1984, fékk BM Vallá annan þeirra til liðs viö
sig til að vera meö ráðgjöf fyrir viðskiptavinina við
útfærslur á t.d. innkeyrslum, gangstígum eöa ver-
öndum. Hafa nokkrir landslagsarkitektar síöan
veriö meö ráögjöf í stuttan tíma. Landslagsarkitekt
hefur nú verið meö fasta ráögjöf í fimm sumur.
Hönnun Fornalundar hefur veriö í höndunum á
Guömundi Rafni Sigurðssyni landslagsarkitekt.
Fyrsti áfangi var opnaöur í júlí 1991, annar áfangi
í júlí 1994, þriöji áfangi í júlí 1995 og fjóröi og sá
nýjasti var opnaður í maí síðastliðnum.
SAMSTARF LANDSLAGSARKITEKTA VIÐ
VÖRUÞRÓUN
Síöan 1984 hefur BM Vallá haft samskipti við
landslagsarkitekta í sambandi viö vöruþróun meö
opnum kynningarfundum fyrir alla og ennfremur
kynningu og umræöu fárra aðila.
Landslagsarkitektar hafa ennfremur komið fram
meö hugmyndir að nýjungum. Dæmi um þaö er
t.d. aö þegar Standgatan í Hafnarfirði var hönnuö
kom fram sú hugmynd frá hönnuöinum aö setja
þar niður klakka. En þeir voru ekki framleiddir hér
á landi en úr varð aö BM Vallá framleiddi þá.
Klakkarnir eru framleiddir ennþá og úrvalið af þeim
er orðiö fjölbreyttara. Annaö dæmi um hugmyndir
landslagsarkitekta að nýjungum er aö þegar
Seðlabankinn var í byggingu, þá var óskaö eftir
því viö BM Vallá aö framleiöa hellur í stærðinni
300-900 mm. Enn í dag er verið aö framleiða hell-
ur í þessari stærö. Síöustu 6-10 ár hefur úrvaliö af
steinum og hellum aukist verulega. Árlega er
boðið upp á nýjungar.
Eftir aö ráðgjafaþjónusta fyrir almenning hófst og
úrvalið af steinum jókst hefur allur frágangur lóöa
breyst mikið til batnaöar. ■
PURIÐUR RAGNA STEFANSDOTTIR, LANDSLAGSARKITEKT