AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1998, Síða 35
VINNUHOPUR 3
hefur undir sínum hatti viðhald grænna svæða og
umhirðu eftir að trjám hefur verið plantað, þar með
talin notkun eiturefna og árangur aðgerða, áætl-
anagerðir, mannafla o.s.frv. Borgarskógrækt tekur
til skóglendis í og við þéttbýli, þar með talinn
garða- og götutré. Fulltrúi íslands er Árni Steinar
Jóhannsson, umhverfisstjóri Akureyrarbæjar.
Það má segja að fundirnir tveir sem hingað til hafa
verið haldnir hafi fyrst og fremst farið í að skil-
greina verkefnið sjálft og þá helst hvað hugtakið
„borgarskógrækt11 þýðir. Skilgreiningarnar eru jafn
margar þjóðlöndunum eða jafnvel fleiri, þar eð full-
trúar landanna, sem eru frá mismunandi landshlut-
um, eru ekki endilega sammála og engin ein skil-
greining gildari eða yfir aðra hafin, þó svo að reynt
sé að samræma „opinberar" skilgreiningar. Sem
dæmi má nefna, að fulltrúi Slóvakíu skilgreindi
borgarskógrækt sem „fólk“, en einn Þjóðverjanna
líkti borgarskógrækt við „regnhlíf, sem verndaði
þann eða það sem undir henni væri“.
Fyrir mörgum þýðir borgarskógrækt útivist; skjól;
fegurð og friðsæld; eitthvað sem hægt er að sner-
ta. Fyrir öðrum sjónmengun; hávaða; hættu; óör-
yggi-
Vissulega er borgarskógrækt mismikil í þátttöku-
löndum COST ACTION 12. Þannig mælist til
dæmis Vínarborg með ríflega 50% ræktun innan
borgarmarkanna, Helsinki um 25% og Amsterdam
12%.
Ýmislegt annað umhugsunarvert hefur komið fram
í inngangserindum í hinum þremur vinnuhópum,
svo sem það að:
I 98% Dana heimsækja skóginn a.m.k. einu sinni
á ári Núna samkvæmt skoðanakönnunum, en
heimsóknirnar eru styttri en fyrir 20 árum, enda
samgöngur betri og vegalengdir styttri.
I Á Ítalíu er mjög litlu fjármagni veitt í rannsóknir
og kannanir á umhverfismálum, enda örar breyt-
ingar í forystusveitum stjórnmálanna.
I í Svíþjóð eru 200.000 ha skóglendis í þéttbýli í
eigu sveitarfélaganna. Hinsvegar eru lítil samskipti
milli landshluta og vita Suður-Svíar lítið hvað er að
gerast fyrir norðan og vice versa.
I í Bretlandi búa 90% íbúa í þéttbýli. Þar eru að
fara í gang úttektir á borgarskógum sem plantað
var samfara uppbyggingu svokallaðra „New
Towns“, sem hófst 1903 með borginni Letchworth
og Iauk fyrir 1990 í borginni Milton Keynes. Elstu
borgarskógarnir eru því orðnir yfir 90 ára gamlir og
athyglisvert er hve ólíkir þeir eru í útliti og upp-
Fyrir hálfum öðrum áratug var hér „allt svart og mengað“-
vegna gríðarlegar kola- og námuvinnslu. Nú hefur landið
verið grætt upp og ætur fiskur veiðist jafnvel í ám og
lækjum. Myndirnar hér að ofan eru teknar í útjaðri byggðar
í Leeds á Englandi.
byggingu og hve tískustraumar hverju sinni eru
ríkjandi í tegundavali trjágróðurs.
I í Leeds á Englandi eru götutré til á lager og eftir-
lit með þeim 24 tíma á sólarhring. Ef tilkynnt er um
skemmt tré einhversstaðar innan borgarinnar,
hvort sem er á aðfangadagskvöld eða öðrum frí-
dögum, er þeim skipt út innan nokkurra klukku-
stunda.
I Tvö þjóðarbrot í Belgíu gera það að verkum að
heildarmynd borgaskógræktar í landinu skilar sér
ekki nema að hluta til, þar sem fulltrúar Flæmingja
eru aðeins þátttakendur í verkefninu.
Næsti vinnufundur samstarfshópsins um borgar-
skógrækt í Evrópu verður í Madrid í febrúar 1999
og án efa verður margt athyglisvert sem þar mun
koma fram. Ráðgert er að hópurinn hittist síðan á
íslandi árið 2000, ef „Kristnitökuhátíðir, „Landa-
funda-karneval“ og „Menningarborga samstarf"
leyfa. ■
33