AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1998, Síða 37

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1998, Síða 37
og leitaði landa er sögur fóru af vestur af Græn- landi. Hann sigldi frá Grænlandi sem leið lá að Hellulandi, og suður með ströndinni að Marklandi og gekk á land á Vínlandi sem hann nefndi svo vegna vínviðar er þar óx. Hann varð því fyrstur Evrópumanna til að stíga á land í Nýja heiminum. Lengi hefur verið vitað um rústirnar að Eiríks- stöðum og var fyrst ráðist í uppgröft á svæðinu árið 1895 og seinna árið 1938. Sumarið 1997 var enn grafið upp á Eiríksstöðum, á vegum Eiríks- staðanefndar og Þjóðminjasafnsins. Þeim rann- sóknum var haldið áfram í sumar með viðamiklum uppgrefti á rústunum. Nú er unnið úr þessum síðustu rannsóknum en þær hafa þegar varpað skýrara Ijósi á form og útlit skálans. Vitað er að bær Eiríks rauða hefur verið skáli um 50 m2 að stærð með langeldi í gólfi og benda efnagreiningar á viðarkolum til þess að þar hafi verið búið um skeið, einhvern tíma á tímabilinu 890-980. Bærinn hefur verið af einfaldri gerð, líklega hefur aðeins ein fjölskylda búið þar og greinilega ekki lengi. Það kemur heim og saman við söguna, þar sem segir að Eiríkur hafi ekki staldrað lengi við á Eiríksstöðum vegna vígaferla. UPPBYGGING AÐ EIRÍKSSTÖÐUM Eiríksstaðir í Haukadal eru tengdir tveimur öðrum byggðum norrænna manna frá svipuðum tíma. Annars vegar eru Leifsbúðir í L'anse aux mead- ows á Nýfundnalandi og hins vegar Brattahlíð á Grænlandi. Leifsbúðir voru rannsakaðar fyrir um 20 árum og þar var byggður tilgátubær af svipaðri gerð og hugsaður er að Eiríksstöðum. í Brattahlíð hefur verið ákveðið að byggja tilgátu um bæ Eiríks rauða og að endurreisa Þóðhildarkirkju. Rústir Eiríksskála eru staðsettar í brekku ofan við veginn inn Haukadal í Dalasýslu. Bænum hefur verið valinn staður ofan við votlendisfláka sem liggur eins og strengur í neðanverðri hlíðinni, en ofan við bæinn tekur við brött fjallshlíðin og að austan rennur bæjarlækurinn, Eiríksstaðagil. Frá rústunum er ágætis útsýni um dalinn. í deiliskipulagi er svæðinu skipt upp í þrjá hluta: 1.2. aðkomu-og þjónustusvæði, 3. 4. rústasvæði og 5. 6. svæðið þar sem endurbyggðum Eiríksskála var valinn staður. Við aðkomu eru gestir fræddir um sögusviðið á upplýsingatöflum sem komið verður fyrir undir þaki Frá fornleifauppgrefti að Eiríksstöðum sumarið 1998. í opnu skýli. Við hlið þess verður síðan komið fyrir hreinlætisaðstöðu. Áhersla er lögð á að umhverfi rústanna verði sem minnst raskað og einskorðast mannvirkjagerð á rústasvæðinu við göngustíga og útsýnispalla. Tyrft verður yfir sjálfar rústirnar þann- ig að form þeirra verði greinilegt í landinu og vegg- ir að hluta sýnilegir. Eiríksskáli hinn nýi verður endurbyggður um 100 m vestan við rústir Eiríksskála. Skálinn er tilgáta um bæ frá landnámsöld og grundvallast af niður- stöðum fornleifarannsókna að Eiríksstöðum og öðrum rannsóknagögnum hérlendis og erlendis. Sérstökfagnefnd Þjóðminjasafns íslands ertil ráð- gjafar um gerð endurbyggingar. Hugmyndin er að Eiríksskáli og umhverfi hans verði lifandi leiksvið þar sem starfsfólk tekur á móti gestum, t.d. í gervi landnámsmanns. Gestum verði þannig gert kleift að skyggnast 1000 ár aftur í tímann og kynnast aðbúnaði og umhverfi Eiríks rauða og Þjóðhildar að Eiríksstöðum. Þá er áformað að endurheimta landnámsskóginn í nágrenni bæjarins og verða Eiríksstaðir hinir nýju klæddir birkiskógi áður en langt um líður. Svo vill til að Skógrækt ríkisins hefur safnað birki- fræi í námunda við Eiríksstaði og verða plöntur frá þessu kvæmi tilbúnar til útplöntunar á vori kom- anda. Svæðin þrjú eru síðan tengd saman með hring- stíg sem lagður er á látlausan hátt í brekkuna. Stígurinn er að mestu timburstígur sem liggur að hluta yfir votlendi. Áhersla er lögð á gott aðgengi fatlaðra um svæðið. Að vestanverðu er stígurinn því lagaður að þörfum fatlaðra hvað varðar breidd, halla og yfirborðsefni. Fyrsti hluti uppbyggingarinar hefur verið boðinn út og stendur framkvæmd yfir núna. ■ 35
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.