AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1998, Page 45

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1998, Page 45
íþróttasvæði er staðsett sunnan skógræktarreits á svipuðum stað og núgildandi aðalskipulag fyrir Neskaupstað gerir ráð fyrir. Til að koma í veg fyrir óþarfa jarðrask í hlíðinni er lagt til að vinnusvæði við garða og keilur verði afmarkað með flagglínu við upphaf framkvæmdar og að verktaka verði ekki heimilt að raska neinu utan þess svæðis, sérstaklega er mikilvægt að afmarka vel svæði sem tengjast fornminjum. Uppgræðsla á svæðinu öllu er um 13 ha lands, þar af er varnargarðurinn um 3 ha að flatarmáli. (Ekki er reiknað með uppgræðslu í tengslum við íþrótta- mannvirki). Gert er ráð fyrir grassáningu og áburð- argjöf á svæðinu öllu eins fljótt og hægt er að framkvæmdum loknum til að hindra jarðvegsrof og moldrok. Ljóst er að uppgræðsla af þessu tagi mun taka nokkur ár og því er mikilvægt að hefja framkvæmdir, leið og hægt er. Gert er ráð fyrir því að þökulagt verði á einstaka stöðum, svo sem næst aðalgöngustíg og á einstöku svæðum, eins og t.d. við áningarstaði og útsýnisstað. Gert er ráð fyrir því, að trjágróður verði gróðursettur beint í tilsáð land. Uppgræðslu á svæðinu má skipta í tvo hluta, þ.e. svæðið milli byggðar og varnargarðs og hinsvegar svæðið ofan varnargarðs. Gert er ráð fyrir því að meðhöndla svæðið milli byggðar og varnargarðs eins og um „tún“ væri að ræða, þar er einnig gert ráð fyrir kröftugri trjárækt. Svæðið ofan varnargarðs skal hinsvegar sá í með fræblöndu þar sem meginuppistaðan eru íslenskar frætegundir, á þessu svæði er einnig gert ráð fyrir töluverðri skógrækt. Auk þess er lagt til að ofan varnargarðs verði sett af stað tilraunarverkefni sem miði að því að safna fræjum úr hlíðinni til að nota við uppgræðslu, þar sem leitast verður við að ná fram gróðursamfélagi sem líkustu því sem fyrir er. Slíkt verkefni mætti e.t.v. vinna í samvinnu við Skógrækt ríkisins, Skógræktarfélag Neskaupstað- ar, Náttúrufræðistofu Austurlands og Landgræðslu ríkisins. Mikilvægt er að afla þekkingar á þessu sviði og gæti verkefni sem þetta nýst vel síðar þar sem gera má ráð fyrir miklum framkvæmdum við snjóvarnir í Neskaupstað í framtíðinni. LOKAORÐ Ljóst er að góðir möguleikar eru á skemmtilegu útivistarsvæði milli varnargarðs og byggðar. Með gróðursetningu er hægt að minnka að nokkru leyti stærðaráhrifin af garðinum, jafnframt því sem gróðurinn skapar skjól og gefur möguleika á fjöl- breyttu útivistarsvæði. Aðgengi að fjallshlíðinni batnar og aukast t.d. möguleikar eldra fólks á að njóta útivistar í hlíðinni með bættum stígtenging- um. Tilraunarverkefni sem miðar að því að safna fræum úr hlíðinni til að nota við uppgræðslu er verkefni sem nýst gæti vel síðar þar sem gera má ráð fyrir miklum framkvæmdum við snjóvarnir í Neskaupstað. Nauðsynlegt er að leggja áherslu á góðan yfir- borðsfrágang við varnargarðinn, en það hvernig tiltekst með uppgræðslu á svæðinu mun skipta miklu máli og hafa áhrif á breytta ásýnd bæjarins og viðhorf almennings til mannvirkisins þegar litið er til framtíðar. ■ Skipulags- arkitekta- og verkfræðistofan ehf Garöastræti 17, 101 Rvk sími: 561-6577 fax: 561-6571 rafpóstur: skipark@centrum.is 30 ára reynsla af hvers konar skipulagi og hönnun bygginga 43

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.