AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1998, Page 67
í tvennt, annars vegar afþreyingariönað
(skemmtigarða) og hins vegar sögu og
menningu. Gamlar borgir, kastalar og
sögustaðir eru fjölsótt af ferðamönnum,
en til þess þarf markvissa markaðssetn-
ingu. Ég tel að við íslendingar eigum hér
mikla ónotaða möguleika. Víkingar eru
t.d. vinsælir erlendis og á tímum nýaldar
ættu álfarnir okkar og tröllin að vekja at-
hygli ferðamanna. Við þurfum að merkja
sögustaði, gera samræmd kort og lýsing-
ar fyrir allt landið og markaðssetja er-
lendis. Að sjálfsögðu verðum við svo að
fylgja þessu eftir þegar ferðamennirnir
koma til landsins.
SAMVINNA VIÐ AÐRAR ÞJOÐIR Mynd 4. Sveitarfélög sem sýna hættumerki í búsetuþróun.
Mikilvægt er að leita samvinnu við ná- Blái liturinn sýnir sveitarfélög er uppfylla skilyröi um hættumerki: 10%
grannaþjóðirnar, einkum innan ramma eöa meiri fólksfækkun 1986 til 1996. eöa 6% eöa meiri fækkun 1992 til
Norðurlandasamstarfs og Evrópusam- . ... . ..... . ...
, Rauöi hringurmn er dreginn um þau sveitarfelog sem syna hættumerki
bandsins. Fólksflutningar fra strjalbýlum Qg myncja samfellt svæöi. Þéttbýliö þar sýnir einnig hættumerki.
svæðum eru ekkert séríslenskt fyrirbæri,
og það er eitt af aðalverkefnum Evrópusambands-
ins að sporna við fólksfækkun á strjálbýlum svæð-
um. Hlutverk svæðasjóða Evrópusambandsins er
m.a. að stuðla að breyttum atvinnuháttum, sporna
gegn svæðisbundnu atvinnuleysi, efla starfs-
menntun og styrkja sérlega strjálbýl svæði. Mikil
áhersla er lögð á eigið framtak á svæðunum,
nýsköpun í atvinnuháttum og þróun lítilla og
meðalstórra fyrirtækja.
ísland getur tekið þátt í ýmsum verkefnum á sviði
atvinnu-, skipulags- og umhverfismála innan
Evrópusambandsins. Margir af innlendum sam-
starfsaðilum Byggðastofnunar hafa talsverða
reynslu á þessu sviði. Við sendiráð íslands hjá
Evrópusambandinu í Brussel starfa auk þess full-
trúar frá ýmsum ráðuneytum og fylgjast þeir meðal
annars með áætlunum og samstarfsverkefnum
Evropusambandsins. Auk þess starfa ýmsir
íslendingar hjá sjálfri framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins. Ég hef nýlega heimsótt þessa aðila
í Brussel og leitað eftir aðstoð þeirra við að leita
samstarfsverkefna fyrir íslenska aðila.
STARFIÐ ENN í MÓTUN
Taka ber fram að starfssvið þróunarsviðsins er enn
í mótun og verður það endurskoðað og þróað
þegar reynsla fæst á hina ýmsu þætti. Þetta
verður gert í samvinnu við stjórn Byggðastofnunar
og nánustu samstarfsaðila þróunarsviðsins. Með
þessu vonumst við til þess að geta lagt okkar af
mörkum til að sporna við fækkun fólks á lands-
byggðinni og framfylgt þar með aðalmarkmiði
Byggðastofnunar að stuðla að þjóðfélagslega hag-
kvæmri þróun byggðar í landinu. ■
I
STAR - stálbyggingar
þegar stórt er byggt
• Alsherjar lausn fyrir stórbyggingar.
• Hönnun hússins og framleiðsla á öllu byggingarefni.
• Einstaklega hagkvæm og ódýr byggingaraðferð
með stuttan byggingartíma.
• Sérhönnuð hús sniðin að þörfum viðskiptavina.
SINDRIX
Þegar byggja skal úr málmum tÆ&
Borgartúni 31 - Sími 575 OOOD - Bréfasími 575 OQ1Q - Veffang sindri.is
65
HÉR & NÚ I SÍA