AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Page 14

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Page 14
því hvernig fjármögnuninni er háttað. Einkum þar sem þörfin er mikil, eins og víða í Asíu, er litið von- araugum til þessa nýja forms framkvæmda og ekki síst eru það hinir hefðbundnu alþjóðlegu sjóðir og bankar sem sjá fyrir að geta með engu móti lánað eða styrkt allar þær þörfu framkvæmdir, sem fyrir- sjáanlegar eru í mörgum þróunarlöndum. Þá geta fjárfestarnir vænst allgóðra vaxta af fjárfestingu sinni, mun meira en t.d. með því að kaupa ríkis- skuldabréf stöndugra ríkja. En það eru engin ný sannindi að ekkert er gefins, enginn málsverður er ókeypis. Því er ekki að leyna að víða um lönd er áhætta mikil samfara framkvæmdum af þessu tagi. Sérstaklega er erfitt að eiga við fram- kvæmdir þar sem gjaldmiðill er veikur og verðbólga mikil. Stjórnmálaórói er líka vandamál, sem þarf sums staðar að taka tillit til og þar sem hætta er á að nýjar ríkisstjórnir muni ekki standa við gerða samninga verður að gera ráð fyrir því í mati á hver sé ásættanleg arðsemi af mannvirkinu. Á endanum eru það not- endurnir sem borga brúsann, en þeir gera það vonandi af fúsum vilja þar sem notkun þeirra af mannvirkinu er þeim til hagsbóta. Þá eru sumir sem efast um það að allir muni hafa efni á að nota ný mannvirki ef borga þarf beint fyrir notkunina. Munu „opinberir“ vegir verða eingöngu fyrir þá ríku sem hafa efni á að borga veggjöldin en hinir mega notast við gömlu leiðirnar? Þannig verður áreiðan- lega spurt og mun sitt sýnast hverjum. AÐILAR AÐ FRANKVÆNDUN OG FJÁRMÖGNUN HVALFJARÐAR- GANGA Eftir forval voru nokkrar verktakasamsteypur vald- ar til lokaútboðs og eftir að tilboð höfðu verið opnuð í ágústlok 1994 var samið við Fossvirki sf. en að því standa verktakafyrirtækin ístak hf. sem er í forsvari, Skánska AB í Svíþjóð og E. Pihl & Sön AS í Danmörku. Tæknilegu hliðar samningan- na voru tiltölulega auðveldar og komu að þeim, auk fyrrgreindra norskra ráðgjafa, verktakinn Fossvirki og verkfræðistofan Hnit hf. sem síðar hafði eftirlit með öllum framkvæmdum fyrir verkkaupann Spöl hf. Tæknileg hlið verksamnings var að mestu frágengin í júlí 1995 en þá voru fjármögnunarsamningar eftir. Þeir voru afar flóknir og komu mörg fjármála- og lögfræðifyrirtæki að þeim. Að lokum, 22. febrúar 1996, var skrifað undir alla samninga, en þeir voru alls 39 að tölu. Stofnkostnaður Hvalfjarðarganga er alls rúmlega 4,6 milljarðar króna að öllum fjármagnskostnaði meðtöldum, samkvæmt verðlagi við undirritun samninganna. Samningarnir gera ráð fyrir að fjár- málalegir bakhjarlar Fossvirkis, verði eins og fram kemur í meðfylgjandi töflu. Framkvæmdin er fjármögnuð á verktímanum af verktakanum, sem hefur framkvæmdalán frá bönkum sínum samkvæmt töflunni hér að neðan, Fjármagnsuppspretta Milljónir kr. Hlutafé 86 Lán úr rfkissjóöi 120 Framkvcemdalán alls fán ríkisábvraðar') 4.124 - Enskilda í Svíþióð (2.47A milliónir krð - Innlendir bankar (825 milli.) - Baring Brothers Ltd (825 milii.) Ríkissióður íslands, ríkisábirað (hámark) 300 Fjármögnun stofnkostnaðar alls, milljónir króna: 4.630 og þegar verktakinn hefur afhent verkið fullbúið og í rekstri til Spalar, þá fyrst greiðir Spölur fyrir verk- ið í heild. Fossvirki ber alla tæknilega ábyrgð á verkinu á verktíma og einnig í fimm ár frá afhend- ingu. Langtímafjármögnunin, þ.e. lán til Spalar hf, er aftur á móti enn flóknari og koma þar að m.a. John Hancock Mutual Life Insurance Inc. í Banda- ríkjunum, og fjölmargir íslenskir bankar og lífeyris- sjóðir. Samningar þessir um fjármögnun verksins eru hinir fyrstu sinnar tegundar á Norðurlöndum. Sýna þeir best það traust sem bankar, tryggingarfélög og lánastofnanir höfðu á undirbúningi og skipulagi verksins af hendi Spalar hf. og á þeim verktaka sem framkvæmdi verkið. Hlutur ríkisins í fram- kvæmdunum er fyrst og fremst vegtengingarnar beggja vegna ganganna og að auki lán til Spalar til að standa straum af upphafsrannsóknum. Hins vegar hefur ríkissjóður haft bærilegar tekjur af framkvæmdinni í formi margs konar gjalda af vinnu, efni og vélum. Það verða síðan veggjöldin, sem endanlega greiða upp lán Spalar, og var í upphafi reiknað með að til þess þyrfti allt að 20 ár. Reyndin hefur orðið sú að umferð hefur orðið talsvert meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir og því er e.t.v. borð fyrir báru, annaðhvort að lækka veg- gjaldið eða stytta endurgreiðslutíma lánanna. Kannski verður hvorttveggja gert. Að afloknum 12

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.