AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Síða 22

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Síða 22
UMHVERFISMÁL Samkvæmt gildandi skipulagi er búið að skipu- leggja iðnaðar- og athafnasvæði allt í kringum flugvöllinn, öll svæðin meðfram NS brautinni að 300 m helgunarsvæði brautarinnar allt frá Umferðarmiðstöðinni að Nauthólsvík er búið að skipuleggja undir slíka starfsemi. Ef farið verður í gang með slíka uppbyggingu í Vatnsmýrinni sem og þá miklu endurnýjun sem fyrir dyrum stendur varðandi endurgerð flugbrautanna, þá er tvennt sem liggur Ijóst fyrir. Fyrir það fyrsta verður ekkert eftir af Vatnsmýrinni sem við þekkjum í dag og númer tvö þá verður flugvöllurinn í Vatnsmýrinni langt fram í næstu öld. Inngrip frá miðborgarbyggð eins og við erum að ræða um á þessu svæði hefði í sjálfu sér ekkert meiri breytingar í för með sér. í báðum tilfellum verður skipt um jarðveg á stórum svæðum og fuglalífið á Tjörninni verður hvort sem er um alla framtíð háð manninum og þeim ramma sem við ákveðum því. Fyrir fuglalífið í miðbænum yrði miðborgarbyggð í Vatnsmýrinni væntanlega betri kostur en flugbraut og iðnaðarsvæði, því í okkar hugmyndum gerum við ráð fyrir að stækka tjarnarsvæðið inn í Vatnsmýrina og inn í hverfið og þar með stækkar þetta tilbúna svæði fyrir þessa fiðruðu gleðigjafa okkar. Þá verður gripið til þeirra ráðstafana sem þarf til að tryggja vatnsstöðu Tjarnarinnar og endurnýjun vatns í henni. Varðandi strandlengjuna við Skerjafjörð þá munu þær framkvæmdir, sem við viljum fara í, láta hinar friðuðu strendur Skerjafjarðar alveg ósnortn- ar. Á einum stað, við enda AV brautar við Suður- götu, verður farið þvert á ströndina með veg sem mun liggja út á flugvöll. Þar sem þessi vegtenging verður þar er ströndin ekki friðuð þar sem hún er hluti af helgunarsvæði AV flugbrautarinnar. Við gerð flugvallar í Skerjafirði verður allt fyllingarefnið flutt sjóleiðis. Grjótið í brimvarnargarðinn verður flutt sjóleiðis og að sjálfsögðu sjávarmölin. Þannig mun ekki einn einasti grjót- eða malarbíll aka um götur borgarinnar á okkar vegum á meðan á framkvæmdum við flugvöllinn stendur. ■ Hvers konar jarðvinnsla, gröfuþjónusta og vinnuflokkar fyrir minni og stærri framkvæmdir. Bíldshöfði 16 112 Reykjavík Sími: 587 5242 Fax: 587 7265 Gsm: 892 1413
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.