AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Page 28
a. Nýsir hf. mun stýra verkefninu og annast
rekstur á húsnæði Iðnskólans í Hafnarfirði allan
samningstímann með tilheyrandi stoð- og við-
haldsverkefnum. Nýsir hf. verður þinglýstur eig-
andi hússins.
b. ístak hf. gerir sem verktaki samning við
Nýsi hf. sem verkkaupa um byggingu nýs skóla-
húsnæðis og niðurrif á eldra húsnæði skólans.
c. íslandsbanki hf. veitir, eða hefur milligöngu
um að veita, Nýsi hf. 25 ára lán með veði í bygg-
ingunni til greiðslu á kostnaði við byggingu hús-
næðisins, kaup á búnaði og vegna frágangs lóðar,
sbr. samning við ístak hf.
d. Nýsir hf. yfirtekur bóknámshús skólans við
Reykjavíkurveg 74 á matsverði skv. útboðsgögn-
um.
e. íslandsbanki hf. mun annast innheimtu hjá
ríkissjóði og miðla til lánardrottna greiðslu afborg-
ana og vaxta áhvílandi lána.
Reynslan af þessu verkefni mun nýtast í næstu
opinberu verkefnum á þessu sviði. Nú hafa
Ríkiskaup boðið út í einkaframkvæmd byggingu
og rekstur hjúkrunarheimilis í Reykjavík í 25 ár og
verður mjög spennandi að sjá hvernig því verki
vindur fram. Valdir hafa verið þrír aðilar í forvali til
að bjóða í verkið. Vonandi koma fleiri verkefni fram
á sjónarsviðið á næstu mánuðum bæði hjá ríkinu
og sveitarfélögunum.
LOKAORÐ
Sú stutta reynsla sem er af einkaframkvæmd
hér á landi lofar góðu. Það er þess vegna full
ástæða fyrir stjórnmálamenn og opinbera embætt-
ismenn að velta þessari leið vel fyrir sér þegar
menn standa frammi fyrir nýjum verkefnum. Ef
undirbúningur er vandaður og vel staðið að fram-
kvæmd útboðsins ætti árangurinn að verða góður.
En gætið þess ætíð að leyfa útsjónarsemi og hug-
myndaauðgi bjóðenda að njóta sín til þess að kalla
fram góðar og hagkvæmar lausnir. Ef það er gert
ætti árangurinn að vera góður. ■
LÍFEYRIS
SJÓÐUR
HEFUR ÞÚ KYNNT ÞÉR
LÍFEYRISSJÓÐ
ARKITEKTA OG TÆKNIFRÆÐINGA?
Lífeyrissjóður arkitekta og tæknifræðinga, LAT, er séreignarsjóður.
Lífeyrissjóður arkitekta og tæknifræðinga, LAT, varð til
við sameiningu Lífeyrissjóðs arkitekta og Lífeyrissjóðs
Tæknifræðingafélags Islands þann 1. júlí 1998.
Lífeyrissjóðurinn er blandaður lífeyrissjóður með tveimur
deildum, séreignardeild og tryggingadeild. Sjóðurinn
sameinar því kosti séreignar- og samtryggingarsjóða.
• 8,9% raunávöxtun lífeyrissjóða arkitekta og
tæknifræðinga að jafnaði árin 1995-1998.
• Iðgjöld í séreignardeild færast á sérreikning
sjóðfélaga og inneign erfist við fráfall sjóðfélaga.
• Sjóðurinn veitir hagstæð lán til sjóðfélaga.
Engin fjárhæðarmörk.
• Sjóðfélagar fá reglulega send ítarleg yfirlit.
Kirkjusandur, 155 Reykjavík. Sími: 588-9170. Myndsendir: 560-8910.
REKSTRARAÐILI: Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf. • Kirkjusandur, 155 Reykjavík.
Sími: 560-8900. Myndsendir: 560-8910. Netfang: vib@vib.is. Veffang: www.vib.is.