AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Side 35

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Side 35
fjarðargöngunum eru nokkur orlofshúsasvæði Borgarfjarðar í álíka fjarlægð frá Reykjavík og vin- sælustu svæðin í Árnessýslu. Til Borgarfjarðar eru öruggari vetrarsamgöngur en austur yfir Hellis- heiði. Mikið landrými er fyrir hendi á fallegum stöðum, nálægt ýmsum náttúruperlum, og hafa nokkrir landeigendur þegar skipulagt orlofshúsa- svæði. Til umræðu hefur verið að auka þjónustu við orlofshúsaeigendur, þannig að hún verði hvergi betri á landinu. Möguleikar ættu að hafa opnast til að bjóða lóðir fyrir stærri og íburðarmeiri heilsárshús heldur en venjuleg orlofshús. Eru þetta oft nefndar „óðals- jarðir“, sem staðsettar eru í nágrenni þéttbýlis. Gefa þær möguleika á að hafa húsdýr á lóðinni. Ættu slíkar lóðir að henta sumum fjölskyldum sem vilja koma sér upp tvöfaldri búsetu, innan og utan þéttbýlis. Samgöngubreytingarnar hafa einnig áhrif á starfsemi mennta- og menningarsetra í Borg- arfirði. Þær ættu að styrkja skólastarf í héraðinu á flestum skólastigum, en í héraðinu eru m.a. stað- settir tveir háskólar, á Bifröst og á Hvanneyri (þriðji háskólinn, Kennaraháskólinn, er með endur- menntunarsetur á Varmalandi). Þekkt eru erlend dæmi um að nemendur sækist eftir skólavist utan mesta skarkala þéttbýlisins, þar sem þeir geta ein- beitt sér að námi sínu, öruggir um sjálfa sig og börn sín. Þeir þurfa samt sem áður að njóta grunn- þjónustu samfélagins. Þeir vilja vera nálægt afþreyingu og fagurmenningu, sem er fjölbreyttust í mesta þéttbýlinu. Fyrirtæki og stofnanir sækjast ennfremur eftir að komast út fyrir mesta þéttbýlið til að halda námskeið og fundi, þangað sem ekki er of langt að fara. Skólarnir á Vesturlandi, sveitar- félög, fyrirtæki og stofnanir hafa sameinast um stofnun Símenntunarstöðvarinnar, sem staðsett er í Borgarnesi og mun sinna þessum markaði. Þannig opnar vegstyttingin ýmsa nýja möguleika fyrir menntastarfsemi í Borgarfirði. Að auki gæti skólastarfið, þ.m.t. rannsóknir og ráðgjöf skólafólksins, orðið mikilvægur stuðnings- þáttur við þróun annarra möguleika svæðisins. ALDURSSAMSETNING Öll landssvæði utan höfuðborgarsvæðisins skortir ungt fólk. Hlutfall fólks á aldrinum 20-40 ára er á þessum svæðum lægra en landsmeðaltalið. Borgarfjörður er hér engin undantekning. Fámenn- ið í þessum aldurshópum skilur eftir sig annað skarð í aldurstré svæðanna, greinar yngstu barn- anna, því í fámennu hópunum er einmitt fólkið á barneignaraldri. Því skiptir það miklu máli fyrir Borgarfjörð að fjölgi í þessum mikilvægu aldurs- hópum ungs fólks. í könnun, sem Ráðgarður gerði á vegum að- standenda skýrslunnar Byggð við Borg meðal fólks á aldrinum 20-40 ára á höfuðborgarsvæðinu, kom fram mikill áhugi á að skoða bútsetu utan höfuðborgarsvæðisins. Rúmlega helmingur svar- enda sagði koma til greina að flytja út á land ef áhugavert starf væri í boði. Þegar athugað var nánar hvort fjarlægð búsetusvæðisins frá höfuð- borginni skipti máli, kom í Ijós að um helmingur þeirra sem áður svöruðu neitandi skipti um skoðun Þegar athugað var nánar hvort fjarlægð skipti máli og taldi flutning koma til greina ef staðurinn væri í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Þessi könnun var gerð áður en Hvalfjarðar- göngin voru opnuð. Þar sem fjarlægðin frá höfuð- borginni skipti greinilega máli má reikna með að áhugi á búsetu í Borgarfirði hafi aukist meðal þessa unga fólks eftir opnun ganganna. Með aukinni umferð aukast kynni ungs fólks af svæðinu, en í Ijós kom í könnun Ráðgarðs að um 65% svarenda töldu sig ekki þekkja mjög vel, eða ekkert, til í Borgarfirði. í þróun búsetusvæða er uppbygging og áhersla á atvinnugreinar eitt. Styrking aldurshópa er annað, ekki síður mikilvægur þáttur. Hægt er að stuðla að fjölgun í ákveðnum aldurshópum með því að bæta búsetuskilyrði sem beinlínis henta þeim. Þannig kom fram í ofangreindri könnun að til viðbótar við atvinnumöguleika maka töldu svar- endur mest um vert að búsetusvæðið hefði að bjóða menntunar- og íþróttaaðstöðu fyrir börn og unglinga, góða heilbrigðisþjónustu, næg leik- skólapláss og útivistarmöguleika, í þessari röð. BREYTINGAR NÝTTAR Af framansögðu ætti að vera Ijóst að nýjar aðstæður hafa skapast fyrir þróun atvinnu- og félagsmála í Borgarfirði. Breytingar sem orðið hafa og aðrar sem eru fyrirséðar munu geta haft veru- leg áhrif á atvinnutækifæri og búsetuskilyrði á landsvæðinu. Stærsta einstaka breytingin er opn- un Hvalfjarðarganganna. Góðir möguleikar eru á að nýta þessar breyttu aðstæður til framþróunar svæðisins. Hversu vel það tekst fer að miklu leyti eftir framlagi og útsjónarsemi heimamanna. ■ 33

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.