AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Side 41
LEIKTJOLD
Hafnarbakkar og aðalstræti
eru afmörkuð af leiktjöldum,
húsum. Þyrpingar húsa
mynda tvo þætti sem tengjast
á torgi. Á hvorum þeirra
myndast „stemmning" sem
mótuð er aðallega af bátum,
húsum, og því sem þar gerist.
í hvorum þætti eru meiriháttar
„viðburðir" og aðrir smærri.
Sá stærsti gerist á torgi, þar sem saman er komið
veitingahús, verslun eða stjórn hafnar. Yst og vest-
ast á bakka er sérkennileg bygging, sem blasir við
innsiglingunni og rammar inn útsýni frá höfn.
Austan hafnar er á norðurenda bakka teflt fram
svipmiklu húsi til að afmarka „staðinn", þeim
megin. Hin húsin við höfnina eru ekki raðhús,
heldur hús byggð hlið við hlið, hvert með sínum
persónuleika. Við aðalstræti innan við hlið gerist
röð smáatburða, hornhús og hús við enda hliðar-
gatna. Mynda þau framhliðar og innganga fyrir-
tækja. í enda fyrsta kafla aðalstrætis blasir
við virðuleg bygging.
HEILDARNYND
Stefnt er að því að skapa byggð, sem
bæði hefur heildarsvip og fjölbreytileika.
Því markmiði er náð annars vegar með
táknrænum byggingum og hins vegar í
krafti reglna/skilyrða sem mynda ramma.
Bæir eins og gamla Akureyri, Cape Cod,
Feneyjar eða Amsterdam eru tjáning lífs-
gleði og orku, smekks og sýndarmennsku,
sem spila saman. Þar sem vel hefur tekist
eru lífsgleðin og orkan óskert, en sýndar-
mennskunni haldið í skefjum. Það er tak-
mark hverfisins."
Upphaf landgerðar vegna Bryggjuhverfis
hófst í þann mund sem fasteignamark-
aðurinn á höfuðborgarsvæðinu fór í þá
lægð sem ríkti fram á síðari hluta ársins
1997. Verkhraði tók mið af markaðsástandi,
enda mat fróðra manna, að ráðlegt væri að
markaðssetja svæðið í uppsveiflu. Svæðið
var fyrst kynnt í árslok 1997 og voru
undirtektir dræmar en einungis einn bygg-
ingaraðili, Byggðaverk sýndi hverfinu
áhuga, að vísu frá fyrsta degi. Byggðaverk
hóf byggingar á miðju ári 1998 og seldi
mjög vel. Þegar árangur Byggðaverks var
Ijós seldust allar íbúðalóðir á svæðinu á mjög
skömmum tíma.
SKERJABYGGÐ
Þegar sá fyrir enda þróunarvinnu í Bryggjuhverfi
fyrir einum tveim árum, var það mat Björgunar að
fyllsta ástæða væri til að halda áfram. Fyrirtækið
hafði byggt upp umtalsverða þekkingu og góðan
hóp fagfólks. Leitað var nýrra svæða, þar sem
móta mætti fallega, skemmtilega og lífvænlega
byggð. Fyrir valinu varð grunnsævi við fyrrverandi