AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Blaðsíða 46
leikans renna saman og verða að einum og sama
hlutnum.
Jan H. van Lierde, forstjóri Vektrons og Kreons.
Hönnuðir og arkitektar sem hanna kerfisloft í
stærri húsnæði þurfa að hyggja að ýmsu. Stærð
loftflatar og gerð loftefnis skiptir miklu máli, en þar
með er björninn ekki unninn. Festingar við loftið,
prófílar, eldvarnir, hljóðeinangrun, loftræstikerfi,
raflagnir, lýsing og auðvitað hönnunin sjálf eru allt
mikilvæg atriði.
Hingað til hefur einungis verið hægt að fá
loftefnið og lampana sitt í hvoru lagi, hvort frá
sínum framleiðandanum. Vandamál þessu tengd
geta til dæmis falist í því að litir lofts og lampa eru
mismunandi og raflagnir geta valdið vandræðum
ofan á loftinu. Nú horfir hins vegar til betri vegar
því belgíski lampaframleiðandinn Kreon og
Vektron, dótturfyrirtæki Kreons, hafa tekið upp
samstarf á þessu sviði. Fyrirtækin framleiða nú í
sameiningu breiða línu loftefna með innbyggðum
lömpum og gera auk þess ráð fyrir raflögnum sem
og öllu öðru sem loftinu við kemur.
SKOPUNARFRELSI I FYRIRRÚMI
Hönnuðir nýju línunnar höfðu sköpunarfrelsi
arkitektsins að leiðarljósi frá upphafi og lögðu
áherslu á einfaldleika og hreinan stíl. Loftið á að
vera hluti af hönnuninni, en ekki viðbót við hana.
Það á að vera auðvelt í uppsetningu, bjóða upp á
sem allra flesta uppsetningarmöguleika og vera
heildarlausn, en ekki aðeins hluti af lausninni.
Niðurstaðan felst í þremur gerðum lofteininga
(„clip-in“, „clip-in tech-tile“ og ,,lay-on“) og úrvali
innbyggðra lampa. Gæðastuðlum ISO9001 er
fylgt til hins ýtrasta og háar kröfur eru gerðar til
hljóðeinangrunar og eldvarna. Við öll kerfin bæt-
ast svo möguleikar Kreonlampanna sem eru inn-
byggður hluti loftkerfisins. Auk þess er hægt að
gera ráð fyrir úðakerfi, loftræstikerfi eða hátölur-
um, allt eftir fyrirhuguðum notkunarmöguleikum
rýmisins. Aðalbyggingarefni loftsins er galvaníser-
að stál.
44