AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Síða 47

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Síða 47
ORUGLAÐIR REITIR „Clip-in“- og „Clip-in tech-tile“kerfin bjóða upp á nánast ótæmandi möguleika. Munurinn á kerfun- um felst í prófíllausu útliti „Clip-in“kerfisins sem hefur slegið rækilega í gegn. Galdurinn felst í dul- dum loftfestingum, en ferningslaga fletirnir krækj- ast auk þess hver við annan. Engu að síður er ein- falt að losa hvern og einn þeirra með lítilli fyrirhöfn. „Clip-in tech-tile“kerfið býður hönnuðinum hins vegar upp á marga útlitsmöguleika þar sem prófílar og ferningslaga plöturnar leika aðalhlut- verk; uppsetningamöguleikarnir eru nánast endalausir. Ferningarnir eru fáanlegir í þremur stærðum: 600x600mm, 625x625mm og 675x675mm, en 8 mm breið og jafndjúp rönd umkringir hvern þeirra. „Lay-on“kerfi Vektron svipar að mörgu leyti til „Clip-in“kerfanna - Ijósin eru innbyggð og hönnuð- urinn ræður stærð ferhyrninganna. Einingarnar eru hins vegar lagðar ofan á festingarnar, ólíkt smellukerfi „Clip-in“kerfanna. Þær geta verið allt frá 30 til 40 sentimetrar að breidd og allt að 1,8 metrar að lengd. OTELJANDI LYSINGARMOGULEIKAR Lýsingarbúnaðurinn frá Kreon fullkomnar kerfið og gefur kost á jafnmörgum möguleikum og loft- kerfin sjálf. Boðið er upp á hefðbundna lágspennta halógenkastara, flúrlampa, sparperulampa, eða í sem stystu máli, allt Kreonlampakerfið eins og það leggur sig, innbyggt í loftið. Auk þessa býður Vektron upp á nýstárlegt dagsljósakerfi frá Kreon sem endurkastar dagsbirtunni inn í herbergið í öf- ugu hlutfalli við tilbúna birtu. Dagsljósakerfið er orkusparandi og birtan sjálf er að mörgu leyti holl- ari en tilbúið Ijós, en nokkuð sérstæðar aðstæður þarf til að geta nýtt þetta framúrstefnulega kerfi. Það er þó vissulega vel þess virði að kynna sér fyrir ókomin verkefni, sérstaklega fyrir framsækna arkitekta. FAGLEG VINNUBROCO Þegar innanhússhönnuðir eða arkitektar hérlendis hafa lokið hugmyndavinnu sinni skila þeir drögun- um til innflytjanda Vektrons, sem sendir upplýsing- arnar áfram til framleiðandans. Hönnunin er full- unnin erlendis í þar til gerðu tölvukerfi og send til baka með heildarlausn bæði fyrir loft og lýsingar- búnað (einnig er gert ráð fyrir hátölurum, loftræsti- kerfi eða úðurum eftir þörfum). Þar sem einingar- nar í loftkerfin eru mjög fjölbreyttar og hannaðar „Heildarlausn er töfraorðið" fyrir hvert og eitt verkefni getur tekið lengri tíma að nálgast fullbúna afurðina en hefðbundnar, fyrir- framsniðnar einingar. Því er betra að hafa örlítið lengri tíma til stefnu en venjulega við innpöntun. Það skilar sér aftur á móti margfalt til baka þar sem kerfið er sérhannað fyrir hvern og einn, notendavænt og á mjög samkeppnishæfu verði. FAGMENN RUGLA REITUM Með því að sameina loft- og lampaframleiðsluna næst allt í senn: Meiri hagræðing, betri framleiðsla og fallegri vara. Kreon hefur lengi framleitt há- gæðalampa með áherslu á fallega hönnun, og nú hafa loftkerfi Vektrons bæst við framleiðsluna. Þannig eru tvö verkefni leyst í einu og útkoman hefur slegið rækilega í gegn. Viðtökur nýja kerfis- ins hafa farið fram úr björtustu vonum og gefa heildarlausnum af þessu tagi byr undir báða vængi. Frekari upplýsingar fást hjá S. Guðjónssyni ehf., innflutningsaðila Vektrons og Kreons á íslandi. ■ 45
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.