AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Síða 55
Þættir sem hafa áhrif á
INNANH
Þegar þættir, sem hafa áhrif á líðan fólks
innanhúss, eru skoðaðir þá kemur í
Ijós að vandamálin geta verið mörg en
þau geta einnig verið margvísleg. Af
þessum sökum þá höfum við hjá
Vinnueftirliti ríkisins reynt að komast að
rót vandans með því að nálgast vandamálið í
áföngum og þar með að nota útilokunaraðferðina.
Þótt leitin að vandanum sé gerð í áföngum og
hinir ýmsu þættir flokkaðir niður þá geta þeir spilað
saman á margvíslegan hátt.
Eftirfarandi þættir hafa áhrif á líðan fólks innan-
húss: eðlisfræðilegir þættir, efnafræðilegir þættir,
líffræðilegir þættir og félagslegir og andlegir þætt-
ir.
EÐLISFRÆÐILEGIR ÞÆTTIR
Meðal mikilvægustu eðlisfræðilegu þáttanna eru
hiti og raki. Þegar veittar eru ráðleggingar um
hitastig, t.d. við kyrrsetuvinnu, er mælt með að
hitastigið sé á bilinu 18°-22°C, best 20°-21°C. Hér
ber þó að hafa í huga að kjörhiti (ákjósanlegt
hitastig) lækkar þegar líkamlegt álag eykst. Gott er
að tryggja jafna varmadreifingu í vinnuhúsnæðinu
og fyrirbyggja dragsúg til að sporna við óþægind-
um.
Líkaminn lagar sig að raka, sem er á bilinu 20-
70%, en rakastigið er þægilegast á bilinu 30%-
50%. Líklegt er að við lágt rakastig finni fólk fyrir
vanlíðan vegna þurrks í efri hluta öndunarfæra.
Slíkur þurrkur getur stafað af aukinni rykmyndun
við lágt rakastig fremur en af beinni uppgufun raka
úr slímhimnum. Ekki er ráðlagt að nota rakatæki til
að auka raka í innilofti vegna hættu á bakteríu- og
sveppagróðri nema fullnægjandi eftirlit og
viðhald sé tryggt.
Ryk er enn annar eðlisfræði-
legur þáttur sem getur haft
áhrif á líðan fólks. M.a. þarf að
huga að teppum, tauáklæð-
um, efnum í skilrúmum,
milliveggjum, klæðningu á
veggjum og í loftum. í
þessu tilliti eru þrif mikil-
vægur þáttur. Þessir þættir:
líðan fólks
hiti, raki og ryk ge
síðan haft áhrif hver
annan þannig að ma
földunaráhrif verða, þ.e.
að loftgæðum getur hrakað verulega við litla breyt-
ingu.
EFNAFRÆÐILEGIR ÞÆTTIR
Samlagningaráhrif gilda um efni sem hafa sömu
áhrif á líkamann. Þetta á t.d. við um lífræn leysiefni
þar sem leggja má saman magn lífrænna efna og
finna þannig svokallað mengunarálag.
Uppgufun lífrænna efna er þannig einn af þeim
efnafræðilegu þáttum sem geta virkað á inniloft.
Uppgufun efnanna getur verið úr innréttingum,
lími, fúgu, lakki o.fl. Aðrir efnafræðilegir þættir í
innilofti geta verið lofttegundir eins og koltvísýr-
ingur (koldíoxíð) og kolsýrlingur (kolmónoxíð).
Koltvísýringur losnar við öndun og ef loftskipti eru
ekki næg hækkar styrkur hans of mikið, þá versna
gæði loftsins og loftið virðist þungt. Tiltölulega
auðvelt er að mæla styrk koltvísýrings og því er
hann notaður til að meta loftgæði. Styrkur í hreinu
útilofti er 350 ppm (ppm = milljónustu hlutar („parts
per million") af ákveðinni einingu; t.d. samsvarar 1
ppm einum lítra af lofttegund í milljón lítrum and-
rúmslofts). í skrifstofuhúsnæði eða á heimilum er
miðað við að hámarksgildi koltvísýrings fari ekki
yfir 1000 ppm.
Kolsýrlingur er t.d. í tóbaksreyk og er auk þess
eitt af efnum í útblæstri bíla. Ef húsnæði er við
mikla umferðargötu eða mikið er reykt í húsnæð-
inu getur það haft afgerandi áhrif á loftgæðin. Ef
kolsýringur er í of miklu magni í andrúmsloftinu
veldur það oft vanlíðan, t.d. höfuðverk og svima.
LfFFRÆÐILEGIR ÞÆTTIR
Nokkrir líffræðilegir þættir geta einnig haft áhrif á
inniloftið, eins og smámaurar, mygla, brot úr ör-
verum og sveppum sem einkum eru tengd vanda-
málum eins og ofnæmi.
FÉLAGSLEGIR OG ANDLEGIR ÞÆTTIR
Um flokk eins og félagslega og andlega þætti
53
FRIÐJON VIÐARSSON, LIFFRÆÐINGUR