AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Side 58

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Side 58
HJÖRDÍS SIGURGÍSLADÓTTIR , ARKITEKT A Ð SKAPA UMHVERF OSTABÚÐIN SKÓLAVÖRÐUSTÍG VERKEFNIÐ fólst í því að skipuleggja og hanna innréttingar fyrir verslun Osta- og smjörsölunnar í fremur litlu hús- næði neðarlega við Skólavörðustíg í Reykjavík. Auk hönnunar var arkitektinum jafnframt falin verkefna- stjórnun, öflun tilboða og eftirlit með framkvæmdum. Versluninni er fyrst og fremst ætlað að selja afurðir Osta- og smjörsölunnar svo og ýmsar vörur og áhöld tengd ostamenningunni er blómstrað hefur hér- lendis á síðustu árum. Koma þurfti fyrir og skapa umgjörð utan um fjölda tækja og fyrirferðarmikinn búnað, svo sem kæli- borð og kæliskápa, sem eru ekkert sérstakt augnayndi. Miklar kröfur eru gerðar til hreinlætis í matvælavinnslu og skyldi frágangur allur og efnisval taka mið af því. INNRA SKIPULAC Valin var sú leið að skipuleggja verslunina á um 60 m^ svæði á tveimur pöllum og er aðalverslunin á þeim efri en sérvörur, áhöld og fleira á þeim neðri en þar er jafnframt aðstaða fyrir viðskiptavini til að tylla sér niður og skoða matreiðslubækur. Pallarnir eru sjónrænt tengdir með langri mjórri rauf þvert yfir vegginn, sem aðskilur pallana. Afgreiðslukassinn er staðsettur miðsvæðis á efri palli. Allt veggpláss er nýtt til hins ítrasta undir hið fjölbreytta vöruúrval en gólfið er ætlað viðskiptavinum. Auk verslunarrýmis eru geymslur og aðstaða fyrir starfsfólk í bakrými.

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.