AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Side 59

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Side 59
N G U SPIL ANDSTÆÐRA FORMA OC EFNA íslensk matvæli hafa ímynd hreinleika, hollustu og óspilltrar náttúru og var leitast við að endurspegla þau gildi í allri hönnun, efnis- og litavali. Allt er úthugsað og sérhannað: innréttingar, lampar, Ijósaskilti og jafnvel kúnnastóllinn. Samspil andstæðra efna, stáls og trés, svo og mjúkra og hvassra forma eru alls ráðandi. Einfaldleika í efnis- og litavali er ætlað að gefa samræmdan heildarsvip. Aðalefnin eru olíuborið beykilímtré og ryðfrítt stál, hvort tveggja hentugt frá hreinlætissjónarmiði fyrir matvælaiðnað. Gólfið er lagt bergbláum flísum en Ijósir litir veggja og lofta endurspegla hreinleika. Niðurhengdar bogadregnar stálplötur minna á skýjabólstra en loftljósin á stjörnubjartan himin. HÖNHUN OG ÍSLENSkT HANDVERK Hjördís Sigurgísladóttir stundaði nám í arkitektúr í Bretlandi og Bandaríkjunum. Að loknu námi starf- aði hún um árabil á arkitektastofum í Chicago, London og Amsterdam. Hjördís rekur nú arkitektastofu- na Arkitektar Hjördís og Dennis í Reykjavík ásamt Dennis Jóhannessyni en hann var jafnframt sam- starfsmaður hennar í verkinu. Smíði öll er unnin af íslenskum handverksmönnum. Stálsmíðin lék í höndum Járnsmiðju Óðins Gunnarssonar en trésmiðjan Beyki skilaði vandaðri trésmíði. Ljóstæknilega ráðgjöf veitti Helgi í Lúmex. Ljósmyndirnar tók: Spessi. ■.

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.