AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Blaðsíða 66
VERKEFNISSTJÓRN VIÐ STÆKKUN FLUGSTÖÐVAR LEIFS EIRÍKSSONAR
STÆKKUN Flugstöðvar
Leifs Eirihssonar
byrjun árs 1996 tók ríkisstjórn íslands
ákvörðun um að Flugstöð Leifs Eiríkssonar
skyldi stækkuð og var Framkvæmdasýslu rík-
isins falinn undirbúningur og umsjón með
verkinu. Flugstöð Leifs Eiríkssonar var byggð
á árunum 1983-1987 og er orðin of lítil til að
anna vaxandi flugumferð. Árlegur fjöldi farþega
um stöðina er nú um 1,2 milljónir og er reiknað
með að vöxturinn næstu ár verði a.m.k. 6% á ári.
Stefnt er að því að ísland taki fullan þátt í
Schengen-samstarfinu á næstu árum. Samstarfið
felst í því, að landamæri aðildarlanda ESB og
EES, að Bretlandi og Sviss undanskildu, verði í
flugstöðinni. Því er þörf á enn ítarlegri hönnun
hvað varðar farþegaflæði um flugstöðina, þannig
að hún haldi áfram að þjóna hlutverki sínu sem
tengistöð. í framhaldi af ákvörðun ríkisstjórnar-
innar ákvað utanríkisráðherra að efna til opinnar
samkeppni meðal arkitekta um stækkun flugstöðv-
arinnar. Samkeppni þessi skyldi felast í hönnun
á stækkun flugstöðvarinnar í tveimur áföngum þar
sem hafist yrði handa við 1. áfanga að hausti
1999. Leitað var að hugmynd þar sem útlit, tengsl
við eldri byggingu, gott flæði og ýmis hagkvæmn-
isjónarmið yrðu leyst á skynsamlegan hátt.
Samkeppnin var auglýst þann 13. september
1998. Hún var öllum opin og vegna umfangs
verksins var hún auglýst á hinu Evrópska efna-
hagssvæði. Alls bárust 15 tillögur og voru þær
allar teknar til dóms. Þær voru mjög misjafnar að
gæðum og fljótlega kom í Ijós að sumar tillagn-
anna stóðust ekki þær grundvallarkröfur sem gera
verður til flugvallarbygginga. Dómnefnd tók tillög-
urnar til umfjöllunar í ársbyrjun 1999, og varð það
niðurstaða hennar að velja úr þrjár tillögur og fara
með þær á annað þrep samkeppni. Eftir að höf-
undar þessara þriggja tillagna höfðu skilað inn
lausnum á nýjan leik tók dómnefnd þær til umfjöll-
unar.