AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Page 80
Pearl City, Penang, Malasíu. í Pearl City er
skemmtigaröur meðfram ströndinni, 40 hæða
hótel og ráðstefnu-og sýningarmiðstöð,5000
sæta leikhús og bílastæði fyrir 5000 bíla.
Wood and Zapata, inc.
a
ndanfarin ár hafa verk arkitektsins
Carlos Zapata vakið verðskuldaða
athygli víða um heim. Þetta er ekki
að ástæðulausu. Honum hefur tekist
, í byggingum sínum að brúa það bil
sem ekki er á allra færi, þ.e. að sam-
eina mjög áhugaverða nútímalega formsköpun og
efnisval bæði hvað varðar grófa drætti bygging-
anna og eins hvað lýtur að smæstu deiliatriðum.
Carlos Zapata fæddist í Venezuela og lærði arki-
tektúr við Pratt University og Columbia University
á þeim árum þegar mikið var deilt um ágæti mód-
ernista og póst-módernista. Þótt telja verði hann til
módernista verður ekki annað sagt en að hann fari
ansi frjálslega með mörg grundvallaratriði þeirrar
stefnu og hafni öðrum algerlega eins og einföldum
formum og mikilli endurtekningu. Að námi loknu
vann hann um árabil hjá ýmsum arkitektastofum
og var meðal annars varaforseti og hönnunarstjóri
hjá Ellerbe/Becket í New York. Árið 1991 opnaði
hann fyrirtækið Carlos Zapata Design Studio á
Miami Beach í Florida. Hann átti líka aðild að stof-
nun fyrirtækisins Zapata and Wood.
Segja má að byggingarlist Carlos Zapata
einkennist af tilraunum með gerð bygginga og
spennandi rými þótt að öðru leyti standi hann fös-
tum fótum í nútíma byggingarlistarhefð. Hallandi
veggir og gólf sem virðast svífa í lausu lofti koma