AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Qupperneq 40
í lagi hefur starfsemi á Miðbakka og Austurhöfn verið
takmörkuð - eða afmörkuð við þætti sem tengjast í fáu
daglegu lífi borgarbúa. Á sumrin hafa reyndar skemmti-
ferðaskip lagst að Miðbakka, og þar hafa verið haldnar
hátíðir á sjómannadaginn og hafnardaginn, en fáir hafa
átt þangað erindi. Samanborið við aðra hluta hafnarinn-
ar, t.d. við Grandagarð, hefur þessi hluti hafnarinnar
verið fremur sviplaus og afskiptur.
Samkeppni um skipulag miðborgar og
hafnarsvæðis við Miðbakka
Fyrir nokkrum misserum komu fram hugmyndir um að
staðsetja tónlistarhús, sem áður stóð til að reisa í
Laugardal, við Austurhöfnina. Við nánari skoðun
ákváðu ríki og borg í sameiningu að samþætta upp-
byggingu fyrir tónlistarstarfsemi, ráðstefnuhald og
hótel- og veitingaþjónustu, þannig að þessir þættir
gætu styrkt hver annan. í byrjun árs 1999 samþykktu
ríkisstjórn íslands og borgarráð Reykjavíkur að beita
sér fyrir byggingu tónlistarhúss, ráðstefnumiðstöðvar
og hótels (TRH) í miðborginni.
Þar sem um er að ræða eitt stærsta skipulags- og
byggingaverkefni síðustu ára í miðborg Reykjavíkur,
samþykkti borgarráð Reykjavíkur að efna til hugmynda-
samkeppni um skipulag lóðarinnar og nærliggjandi
svæða við Austurhöfn í samstarfi við Arkitektafélag
íslands (AÍ).
Með því að efna til hugmyndasamkeppni vildi
Reykjavíkurborg kalla fram valmöguleika um skipulag
og nýtingu svæðisins og marka umgjörð fyrir þá fjár-
festingu og uppbyggingu sem þar yrði efnt til. Fyrir lá að
uppbygging á svæðinu yrði að stórum hluta til á vegum
einkaaðila og að uppbygging, sem opinberir aðilar
myndu kosta, yrði unnin í einkaframkvæmd. Ef vel tæk-
ist til myndi hugmyndasamkeppni laða fram mismun-
andi hugmyndir og valkosti, sem myndu gera borgar-
yfirvöldum betur kleift að skilgreina markmið og framtíð-
arsýn fyrir svæðið, um leið og markaður yrði tiltekinn
rammi sem fjárfestum gæfist síðar kostur á að útfæra
nánar í tilboðum sínum um fullnaðaruppbyggingu
svæðisins.
Meðal þátta sem mikilvægir voru í þessu tilliti voru
skipulag svæðisins og fyrirkomulag TRH á lóðinni,
umferðarmannvirki, aðkoma akandi og gangandi, þétt-
leiki byggðar, tenging við miðbæinn annars vegar og
höfnina hins vegar, og fyrirkomulag verslunar, þjónustu
og afþreyingar.
Tillögurnar
í lok janúar lauk sýningu á tillögum í hugmynda-
samkeppninni. Þar gat að líta ótalmargar og fjölbreyttar
tillögur. Þátttaka var góð og þátttakendur komu víða að.
Ein tillaga hlaut fyrstu verðlaun, þrjár tillögur hlutu þriðju
verðlaun, og að auki voru keyptar inn tvær tillögur.
Höfundar vinningstillögunnar voru: Guðni Tyrfingsson,
Lotte Elkjær, Mikel Fischer-Rassmussen og Lasse
Grosböl, arkitektar frá Danmörku. í umsögn dóm-
nefndar um tillöguna segir m.a. eftirfarandi
Tillagan sýnir sannfærandi lausn á því flókna við-
fangsefni samkeppninnar að tengja saman byggð og
byggðamynstur Kvosarinnar við skipulag svæðisins og
hið flókna samspil og fyrirkomulag TRH sem ítarlega er
gerð grein fyrir í keppnislýsingu. Ennfremur lýsir tillagan
á einfaldan hátt að hvorttveggja er mögulegt, að koma
TRH fyrir á svæðinu og virða grundvallarforsendur
samkeppninnar um umferð, hagræn sjónarmið og ekki
síst starfsemi á hafnarsvæðinu.
Tillagan lýsir borginni sem „aflvaka”. í henni er lögð
áhersla á hið græna belti frá suðurhlíðum Öskjuhlíðar
niður í Kvosina, sem liggur milli hæðanna tveggja í aus-
tri og vestri, Landakotshæðar og Þingholtanna. Þar
verður byggingin, sem brotin er upp í mismunandi
byggingarform, áberandi í umhverfi sínu og tengir á
mjög kröftugan og sannfærandi hátt saman borgina og
sjóinn. Tillaga að fyrirkomulagi og byggingum gefur
fyrirheit um glæsilega hönnun sem teygir sig yfir á
Lækjartorg og kemur m.a. fram í léttum svífandi þak-
flötum yfir starfsemi á torginu fyrir strætisvagnastöð og
aðkomu að TRH.
Hugmyndin er mótuð eins og landslag í borg, bylgja
sem brotin er upp í minni hluta. Þetta skapar bæði
sterka sjónræna ímynd bygginganna og tengir svæðið
á afar sannfærandi hátt við Kvosina með breiðum
undirgöngum eða hallandi torgi undir Geirsgötu. Undir-
göngin eru hluti bylgjunnar sem hefst við Hafnarstræti
og lýkur yfir höfninni...
Á Miðbakka er gert ráð fyrir byggingum fyrir menning-
arstarfsemi, kaffihúsum og þess háttar starfsemi...
TRH byggingunum er stillt upp í kringum torg þar
sem mismunandi starfsemi bygginganna tengist saman
á skýran og sannfærandi hátt. Byggingarnar sem
opnast í allar áttir að umhverfi sínu verða á eðlilegan og
áhrifamikinn hátt hluti af strandlínu borgarinnar þar sem
tónlistarsalurinn er hápunkturinn.
Það var dómnefndinni nokkur léttir að fram kom til-
laga sem svaraði þeim skilyrðum sem sett voru fram í
samkeppnislýsingu - tillagan þótti skapa góðan ramma
um þau fjölmörgu atriði sem leysa þyrfti í tengslum við
verkefnið.
38