AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Qupperneq 45
sjálfbærni á heimsvísu voru
skoðuð áhrif á líffræðilega fjöl-
breytni, samgöngur, sam-
göngumáta, heildar orkunotkun
og svæðisbundin loftgæði.
Hver þessara þátta var síðan
skoðaður nánar með tilliti til
tiltekinna mælikvarða. Dæmi
um mælikvarða sem tengjast
opnum svæðum eru áhrif á
stærð og fjölda opinna svæða,
gæði þeirra og græna trefilinn.
Helstu niðurstöður
umhverfismatsins
LÍFSGÆÐI OG NÆRUMHVERFI
ÆSKILEG ÁHRIF EÐA ÚTKOMA
ÞÆTTIR TIL ATHUGUNAR VERNDA1 MINNKA BÆTA HEPPILEG STAÐSETN.
Opin svæöi • StaBfð og fjöldi opinna svæða • Gæði opinna svæða • Grænn trefill / tengingar
Heilsa • Staðbundin loftgæði • Aðstaða til afþreyingar • Útblástur farartækja • Framkvæmdir viðkvæmar fyrir hávaóa • Framkvæmdir sem valda hávaða • Hávaðasamar Iþróttir • Gæöi drykkjarvatns • Hávaði
Öryggi • Öryggi og öryggistilfinning • Öryggi á götum & vegum • Hönnun & skipulag þéttbýlis • Skipulag göngu- og hjólaleiöa
lagið hvílir á eru:
• Reykjavík sem höfuðborg
• alþjóðleg borg
• vistvæn borg.
Undir þeim eru skilgreind fjögur markmið og leiðir undir
þeim. Markmiðin eru að stuðla að öflugu atvinnulífi,
auka gæði byggðar, leggja áherslu á hagkvæma nýt-
ingu lands og þjónustukerfa og að samgöngur verði
skilvirkar, öruggar og vistvænar.
Öll markmiðin miða að sjálfbærri þróun og skila að
mestu jákvæðum áhrifum á umhverfi, efnahag og fé-
lagslega þætti. Þær leiðir sem farnar eru til að fram-
fylgja markmiðunum uppfylla einnig í öllum meginat-
riðum kröfur um sjálfbæra þróun. Gott innbyrðis sam-
ræmi er milli markmiða og leiða aðalskipulagsins. í
nokkrum tilvikum þarf þó að gæta að útfærsluatriðum.
Ef miðað er við núgildandi aðalskipulag, er óhætt að
segja að sú aðalskipulagstillaga, sem hér liggur fyrir,
færi Reykjavík nær því að vera sjálfbær borg. Þar
vegur þyngst áhersla á vaxtarmörk og þéttingu byggð-
ar, aukinn þéttleika, skilmálar um gæði byggðar og
áhersla á vistvænar samgöngur. Engin markmið eða
leiðir í aðalskipulaginu geta talist andstæð sjálfbærri
Þróun, þar sem hvergi er um að ræða óafturkræf áhrif á
höfuðstól náttúrulegra auðlinda, efnahag eða samfélag.
Þetta umhverfismat Aðalskipulags Reykjavíkur 2001-
2024 var unnið undir lok skipulagsvinnunnar, þegar
stefnumið, markmið og leiðir höfðu endanlega verið
ákveðnar. Sú aðferðafræði sem beitt var við umhverfis-
matið, byggir á reynslu frá þeim löndum sem lengst eru
komin á þessu sviði. Aðferðafræðin er betur til þess
fallin að gera upp á milli valkosta og nýtist því best ef
hún er nýtt samhliða skipulagsferlinu. Við þessar kring-
umstæður verður hagnýting aðferðafræði umhverfis-
matsins lík gátlista og gildi hennar felst þannig fyrst og
fremst í öryggi um að skipulagsyfirvöldum hafi ekki yfir-
Viðmið við mat á sjálfbærri þróun - Mynd: Dæmi um mælikvarða sem hægt er að
setja fram við mat á sjálfbærni skipulagsáætlunar.
sést að fjalla um mikilvæg atriði. Umfjöllunin er þá enn-
fremur að mestu eigindleg. Rétt er að árétta að tals-
verður hluti umhverfismatsvinnu er í eðli sínu huglægur
og byggður á mati þeirra aðila, sem tóku þátt í vinnunni.
Breytti umhverfismatid vinnu við Aðal-
shipulagið?
Reynsla okkar hjá Reykjavíkurborg er sú að umhverf-
ismatið á Aðalskipulaginu 2001-2024 hafi gert ákvörð-
unartöku skýrari og markvissari. Betri yfirsýn hafi feng-
ist varðandi umhverfisáhrif tillögunnar, sem hafi gefið
svigrúm til breytinga.
Með þessari vinnu er kominn grunnur að verklagi við
umhverfismat fyrir skipulagsáætlanir í Reykjavík á aðal-
og deiliskipulagsstigi og við mat á áhrifum framkvæmd-
a á skipulagsstigi. Þannig nýtist þessi brautryðjenda-
vinna strax í framhaldi og mun skila sér í markvissari
vinnubrögðum og gagnsæjari ákvörðunartöku í náinni
framtíð. Umhverfismat mun því verða unnið samhliða
skipulagsvinnu í framtíðinni hjá Reykjavíkurborg.
Hverjrir unnu umhverfrismatrið?
Umhverfismatið var unnið af ráðgjafarfyrirtækinu
ALTA, fyrir skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur-
borgar og í samráði við umhverfismatsteymi sviðisins.
Ráðgjafar á vegum ALTA voru Halldóra Hreggviðsdóttir,
verkefnisstjóri, Sigurborg Kr. Hannesdóttir og dr. Riki
Therivel hjá Levett-Therivel. Starfsmenn skipulags- og
byggingarsviðs voru Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, verk-
efnisstjóri, Bjarnfríður Vilhjálmsdóttir, Björn Axelsson og
Haraldur Sigurðsson. Auk þess var Hjalti
Guðmundsson hjá umhverfis- og tæknisviði, verkefnis-
stjóri Staðardagskrár 21 hjá Reykjavíkurborg, með í
hópnum. ■
43