AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Page 53
Nálægö viö ósnortna náttúru og auðlindir hafsins;
gnótt umhverfisvænnar orku frá fallvötnum og jaröhita;
vel menntað og duglegt fólk sem er opið fyrir nýjung-
um; skólar, rannsóknastofnanir og þekkingarfyrirtæki á
heimsmælikvarða og staðsetning miðja vegu milli
tveggja sterkustu markaða heims eru allt þættir sem
gera alþjóðaborgina Reykjavík að mjög sérstökum
kosti fyrir fyrirtæki og fjárfesta. Þegar við bætast mikil
lífsgæði, öryggi og einstaklega líflegt menningarlíf, þar
sem rótgróin menning blandast alþjóðlegum straum-
um, sést sérstaða höfuðborgar íslands enn betur.
Aflvaki hf., atvinnuþróunarfyrirtæki Reykjavíkur, hefur
það verkefni að koma þessari sérstöðu á framfæri og
efla enn samkeppnishæfni Reykjavíkur sem alþjóðlegr-
ar borgar.
Sem höfuðborg íslands og langstærsta sveitarfélagið
á þéttbýlissvæði þar sem yfir 60% landsmanna búa,
hefur Reykjavík ríkar skyldur í atvinnumálum. Reykja-
vík hefur það hlutverk að vera samkeppnishæf við aðr-
ar alþjóðaborgir um fólk, fjármagn og þekkingu og
tryggja þannig stöðu íslands í heild. Á undanförnum ár-
um hefur stoðunum undir atvinnulífinu stöðugt verið að
fjölga og helstu vaxtarbroddarnir einkennast af því að
nýjustu vísindum og tækni er beitt á sviðum þar sem
fyrir er menningarleg eða náttúruleg sérstaða á íslandi.
Brú milli heima
ísland liggur á Norður-Atlantshafshryggnum þar sem
jarðflekar Evrópu og Ameríku mætast. Hreyfing þess-
ara fleka, hvors í sína áttina, skýrir mikla eldvirkni og
jarðhita íslenskrar náttúru sem er uppspretta gífurlegr-
ar orku. En sumir hafa talið að ísland liggi ekki aðeins
jarðfræðilega á milli Evrópu og Ameríku heldur að
sumu leyti einnig menningarlega. Á það hefur verið
bent að íslendingar búi bæði að hinu öfluga Skandin-
avíska velferðar- og menntakerfi og hinni Norður-
Amerísku trú á framtak og athafnafrelsi einstaklingsins.
Vegna legu landsins úti í hafi hefur það frá upphafi ver-
ið nauðsynlegur og eðlilegur þáttur í lífi landsmanna að
sækja þekkingu og áhrif út í heim og laga að sínum sér-
stöku aðstæðum. Öflugar samgöngur og samskipti
hafa því alla tíð skipt sköpum og eru enn lífæð.
Ef til vill má skýra mikið af sérstöðu íslensks atvinnu-
lífs og menningar með því að landið liggi á þessum
mótum gamla og nýja heimsins, mitt í hringiðu alþjóð-
legra strauma í menntun og menningu, þar sem menn-
ingin mætir náttúruöflunum í öllu sínu veldi.
Jarðhitinn er beislaður til húshitunar og raforkufram-
leiðslu auk þess sem há fjöll, jöklar og úrkoman, sem
stafar af legu landsins úti í hafi, skapa kraftmikil fallvötn
sem nýtt eru til raforkuframleiðslu. Orkuveita Reykja-
víkur er öflugt og framsækið orkufyrirtæki sem hefur á
Orkuverið að Nesjavöllum er hannað þannig að hægt sé að
stækka það þar til hámarksnýtingu jarðhitans er náð. Frá
upphafi var gert ráð fyrir framleiðslu á rafmagni með
gufuhverflum. Haustið 1998 var fyrsti gufuhverfillinn ræst-
ur og sá næsti undir lok þess árs. Fimm holur hafa verið
virkjaðar til viðbótar og heildarafl orkuversins aukið í
200MWt og vatnsöflun í 1100 sekúndulítra. Þriðji gufu-
hverfillinn var tekinn í notkun í júní, 2001. Gufuhverflarnir
eru 30MWe hver þannig að rafmagnsframleiðslan er í
heild 90MWe.
The Nesjavellir power station is designed so that expan-
sions will obtain maximum geothermal production. From
the plant’s inception, electricity production using steam
turbines has been planned. Two steam turbines were
installed in 1998, the first in the fa.ll of that year. Five addi-
tional holes were put online, increasing total processing
power to 200MWt, with water production reaching more
than 1100 litres per second. In June 2001, the third steam
turbine was put into operation. The turbines produce 20
Mwe each, making total electric output 90 Mwe.
undanförnum árum byggt afkastamikil raforkuver þar
sem jarðhiti er beislaður. Sérþekking í orkumálum er að
verða verðmæt útflutningsvara og tvímælalaust einn af
vaxtarbroddum íslensks atvinnulífs.
Undirstöðuatvinnugrein íslendinga er sjávarútvegur
enda einhver ríkustu fiskimið heims umhverfis landið. í
þeirri grein er til mikil sérþekking, allt frá sjálfbærri nýt-
51