AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Side 55
ustu upplýsingatækni og framfara á sviði líf- og heilsu-
tækni hafa sprottið mjög öflug og framsækin fyrirtæki á
heimsmælikvarða. Þau eru t.d. á sviði líftækni, erfða-
fræði, þróunar stoðtækja og greiningartækja, lyfja-
þróunar- og framleiðslu. Reykjavík er höfuðstaður
þessarar tækni á íslandi og sem háborg líf-, heilsu- og
upplýsingatækni í Norður-Atlantshafi býður hún upp á
marga kosti fyrir frekari þróun greinarinnar.
Ferðamenn hafa í gegnum tíðina lagt leið sína til
íslands til að njóta einstæðrar náttúru og nú koma þeir
ekki síður til að upplifa menningu og listir. Reykjavík er
miðstöð hönnunar, tísku, kvikmyndagerðar og tónlistar
sem vekur sífellt meiri athygli á alþjóðavettvangi.
Hlutverk Af Ivaka
Tilgangur félagsins er að vinna að eflingu og fram-
gangi atvinnulífs í höfuðborginni, þannig að borgin
standist á hverjum tíma samkeppni um fólk og fyrirtæki,
veiti fyrirtækjum og starfsfólki þeirra góða þjónustu og
ræki höfuðborgarhlutverk sitt í þessu samhengi.
Þannig er megintilgangi Aflvaka hf. lýst í samþykktum
félagsins. Aflvaki er atvinnuþróunarfyrirtæki í eigu
Reykjavíkurborgar, Orkuveitu Reykjavíkur og Reykja-
víkurhafnar. Aflvaki var stofnaður á árunum 1993-94,
en þá var mikil lægð í íslensku atvinnulífi. Ein megin-
hugmyndin með stofnun Aflvaka var að höfuðborgin
yrði sýnilegri og virkari í atvinnulífinu og tæki meiri þátt
í því að treysta undirstöður atvinnulífsins.
Aflvaki hefur gengið í gegnum ýmsar breytingar frá
stofnun. Á tímabili tók Hafnarfjarðarbær þátt í starfi
félagsins auk nokkurra stórra lífeyrissjóða. Lengst af
var einnig lögð mikil áhersla á fjárfestingar og beina
þátttöku í atvinnulífinu. Á síðustu árum hafa verið gerð-
ar miklar breytingar á starfi Aflvaka hf. Félagið er nú
hreint Reykjavíkurfélag og með tilkomu virkari fjár-
magnsmarkaðar og betri fjármögnunarmöguleika var
ákveðið að Aflvaki hf. seldi þann þátt starfseminnar og
einbeitti sér að atvinnuþróun.
Það hefur alla tíð verið hugmyndin með Aflvaka að
tengja saman stjórn borgarinnar og atvinnulífið í borg-
inni með sem bestum hætti. Þetta kemur vel fram í
samsetningu stjórnar félagsins. Stjórnina skulu skipa
sex menn og kýs aðalfundur hana til eins árs í senn.
Skulu þrír þeirra vera úr hópi borgarfulltrúa í Reykjavík
og þrír sem tengjast atvinnustarfsemi í borginni eða
öðrum þeim viðfangsefnum sem tengjast tilgangi
félagsins. Með sama hætti skal kjósa 6 varamenn til
eins árs í senn. í stjórn félagsins sitja eftirtaldir á starfs-
árinu 2001-2002: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri sem er formaður, Inga Jóna Þórðardóttir borgar-
fulltrúi, Helgi Rétursson borgarfulltrúi, Sveinn Hannes-
son framkvæmdastjóri, Kristján Jóhannsson lektor og
Þórólfur Árnason framkvæmdastjóri.
Nýjjar áherslur
Aflvaki vinnur nú að því að meta styrkleika og gæði
Reykjavíkur fyrir fyrirtæki og fjárfesta. í áranna rás
hefur verið unnið ýmislegt gott starf í þessu tilliti, t.d. í
tengslum við Reykjavík sem heilsuborg, „Spa-city“, al-
þjóðlegan fundarstað, hreina og vistvæna borg o.s.frv.
Markmið Aflvaka er að ná öllu þessu efni saman í einn
„pakka“ og nota í öflugri kynningu á kostum Reykja-
víkur.
Sóknarfæri Reykjavíkur á sviði líf- og heilsutækni,
orkunýtingar, lyfjaþróunar og -framleiðslu, fjarskipta,
samgangna og upplýsingatækni eru margvísleg og því
er verið að undirbúa markaðssókn með það að mark-
miði að ýta undir klasamyndun á þessum sviðum. í
þessu sambandi horfa margir til væntanlegs þekking-
arþorps sem mun rísa í Vatnsmýri.
Fram fer hörð samkeppni milli svæða í heiminum um
að draga til sín öflugt atvinnulíf. Sem höfuðborg íslands
á Reykjavík tvímælalaust að taka þátt í þeirri sam-
keppni. ■
REYKJAVÍK:
A COMPETITIVE INTERNATIONAL CITY
The proximity of unspoilt nature and the riches of the
ocean; an abundance of sustainable energy, both
hydro and geothermal power; a highly-educated labour
force, willing to embrace new technology; universities,
research institutions and world-leading biotechnology
and IT companies, plus a strategic location in the mid-
Atlantic which bridges two of the world's strongest mar-
kets, are all factors contributing to Reykjavík being a
very special choice for companies and investors.
Considering also an overall excellent quality of life,
general security and a lively culture scene where the
rich Nordic cultural heritage meets the latest interna-
tional trends, it becomes even easier to grasp why the
capital of lceland is so unique. Aflvaki Ltd., the devel-
opment company of Reykjavík, is responsible for
informing the world of these qualities, thus strengthen-
ing Reykjavík's standing as an international city.
As the capital of lceland and by far the largest urban-
area community where over 60% of the nation resides,
Reykjavík has a great responsibility to ensure future
industrial and economic development. It is the role of
Reykjavik to be competitive, compared to other inter-
national cities, when it comes to attracting investment,
knowledge and people to ensure lceland's status as a
whole. Recent years have seen an incredible growth of
new industries, especially where the latest science and
technology is applied to fields where lcelanders have
53