AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Blaðsíða 68
14.7 íb/ha brúttó.
Mynd 3.
Breiðholtshverfi. 20,6íb/ ha brúttó.
brautar/norðan Suðurgötu. 3 I íb/
ha brúttó.
Auha þéttlerika byggðar
Talsveröur munur er á þéttleika íbúöasvæöa í borg-
inni í dag (sjá 2., 3., 4., mynd) en almennt er þó þétt-
leikinn meiri vestan Elliöaáa. Nýjustu hverfi borgarinn-
ar, Grafarholt, Staöahverfi, eru meö meðaltalsþéttleika
um 20 íbúðir á hektara. í aöalskipulaginu er sett fram
stefna um aö auka þéttleika byggöar talsvert frá því
sem þróunin hefur verið. Meöaltalsþéttleiki á nýjum
byggingasvæöum og þéttingasvæðum veröur því um
27 íbúðir á hektara brúttó (ath. 2,3) miðað viö 15-20
íbúðir á hektara í aöalskipulaginu 1996-2016. Aukning
á þéttleika byggöar er í takt viö hugmyndir um sjálfbæra
þróun borgarumhverfisins. Aukinn þéttleiki byggöar
stuölar aö hagkvæmari samgöngum og betri nýtingu
lands og þjónustukerfa. í þessu Ijósi er einnig gert ráö
fyrir aö þétting byggðar hámarkist næst leiðum
almenningsvagna á nýjum byggingasvæöum og þar
sem samþjöppun þjónustu í kjarna á sér staö.
Umhverfris- og búsetugaeðri
Megináherslur aöalskipulagsins hvaö umhverfis- og
búsetugæöi varöar er sú vistfræðilega hugmyndafræöi
sjálfbærrar þróunar sem felur m.a. í sér: þéttleika, ná-
lægö viö þjónustu, öryggi umferöar, skjól, hljóövist,
blöndun, félagslegt jafnvægi, íbúalýöræöi og sveigjan-
leika og tengsl viö opin svæöi. í þessu samhengi veröa
útbúnir skilmálar innan þriggja ára frá staðfestingu
aöalskipulagsins um:
1) þróun og uppbyggingu vistvænnar byggðar
2) gæöi byggöar í íbúðarhverfum og á atvinnusvæöum
3) mótun hönnunarstefnu Reykjavíkur.
Ritin veröa leiðbeinandi viö deiliskipulagsgerö.
Blöndun byggðar
Nokkurt ójafnvægi hefur ríkt á milli fjölda starfa og
fjölda íbúa ef svæöin austan og vestan Elliöaáa eru
borin saman. Til aö ná fram auknu jafnvægi í dreifingu
atvinnusvæöa og íbúðasvæða og skapa þannig aukin
atvinnutækifæri nær íbúöahverfum þarf aö stuðla aö
aukinni blöndun byggöar. Blöndun byggöar dregur úr
umferðarþörf og er liður í því að stytta fjarlægðir á milli
íbúöa og verslunar, þjónustu og atvinnu og draga þann-
ig úr aðskilnaði mannlegra athafna og stuðla að fjöl-
breyttara borgarumhverfi.
Yfrirbragð byggðar og byggðamynstur
í aðalskipulaginu er sett fram stefna um yfirbragð,
byggöamynstur og þéttleika á einstökum nýbyggingar-
og þéttingasvæðum til aö stuðla að betri landnýtingu og
fjölbreytileika innan svæöanna. Stefnt er aö því aö á
hverjum tíma veröi fjölbreytt framboð á íbúöar- og
atvinnuhúsnæði í mismunandi hverfum. Fjölbreytt
hverfi stuðla aö fjölbreyttu mannlífi sem eykur á gæöi
byggðar og umhverfis- og búsetugæöi borgarbúa og
spornar gegn einsleitum félagslegum hverfum.
Fjölbreytrilcrihri lands og byggðar
í aöalskipulaginu er mörkuð stefna um aö viöhalda
náttúrlegum fjölbreytileika lands og lífríkis samhliöa því
aö skapa góö tengsl íbúðabyggðar við fjölbreytt nátt-
úru- og útivistarsvæöi. í gildi er heildarskipulag fyrir
útivistarsvæði í borginni sem miðar aö því að styrkja og
bæta núverandi net útivistarsvæða og stíga sem tengj-
a saman hverfi, heimili, þjónustu og vinnustaði. Þar
hafa einnig verið skilgreind náttúrusvæði sem verður
viöhaldiö meö því aö fella þau undir hverfisvernd. ■
Höfundur er umhverfisstjóri skipulags- og byggingar-
sviös.
1. Hér er um nýja skilgreiningu á þéttbýli Reykjavíkur aö ræöa.
í Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016 er miöaö viö 40 km2.
2. þegar fjöldi íbúöa á brúttó ha er reiknaður þá er tekiö heild-
arsvæöi hverfis, þ.e. íbúðalóðir, þjónustulóöir fyrir íbúöahverfið,
vegakerfi og opin svæöi og fjöldi íbúöa áætlaöur á allt svæöið.
Brúttó þéttleiki er yfirleitt notaöur þegar borin er saman þéttleiki
hverfa og stærri svæða. Hafa verður í huga aö mismunandi aö-
stæöur geta haft áhrif á þéttleikahlutfall. Til aö samanburður
milli einstakra hverfa gefi sem réttustu mynd er því nauðsynlegt
að bera saman svlpaöar aöstæður eins og t..d aö reikna ekki inní
atvinnusvæöi sem ekki eru bein hverfisþjónusta s.s. skólar og
hverfisverslun.
3. Sjá töflu 2.töflu í greinargerð aöalskipulagsins, blönduö
svæöi 2001-2024 - þéttleiki og yfirbragöbyggöar.
ÓÓ