AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Qupperneq 73
■ um eftirsótt vinnuafl
■ um rannsókna- og háskólastofnanir
■ um ferðamenn
■ um alþjóðlega viðburði á sviði
íþrótta,menningar- og stjórnmála, sýn-
ingar, ráðstefnur og fundi
■ Reykjavík skapi góð búsetuskilyrði
fyrir fjölmenningarlegt samfélag og fjöl-
breytt mannlíf
■ Reykjavík hafi alþjóðlegt yfirbragð en
með skýrum tilvísunum í náttúruna,
söguna og sérkenni landsins.
Það eru nokkur lykilatriði í skipu-
lagningu og uppbyggingu borgarinnar
sem geta lagt grunninn að því að
Reykjavík verði alþjóðleg borg í þessum
skilningi, þó vissulega kalli þessi marg-
þættu markmið á samþættar aðgerðir á
mörgum öðrum sviðum innan borgarkerfisins.
Lykilatriði sem styrkja Reykjavík sem alþjóðlega borg:
Efling miðborgarinnar, þétting byggðar, endurskipu-
lagning eldri iðnaðarsvæða á Nesinu fyrir skrifstof-
ur og íbúðir, bygging tónlistarhúss og ráðstefnu-
hótels í miðborginni, uppbygging nýrra atvinnu- og
íbúðarsvæða í Vatnsmýri, skilvirkari almennings-
samgöngur og göngu- og hjólreiðastígakerfi, eru lykil-
atriði í þróun Reykjavíkur sem alþjóðlegrar borgar.
Hér að neðan eru nefnd fjögur megin atriði í aðal-
skipulaginu sem stuðla að framgangi Reykjavíkur sem
alþjóðlegrar borgar. Þéttari byggð og fjölbreyttari land-
notkun. Aðalskipulagið gerir ráð fyrir meiri þéttingu
byggðar en áður hefur þekkst í borginni og gerir jafn-
framt ráð fyrir auknum þéttleika byggðar í nýjum
hverfum. Ef aðalskipulagið nær fram að ganga verður
þetta í fyrsta skipti síðan á fyrri hluta síðustu aldar að
þéttleiki byggðar í Reykjavík eykst og þar með tekst að
stöðva áratugalanga útþynningu byggðarinnar. í aðal-
skipulaginu eru einnig settir fram í fyrsta skipti
ákveðnir skilmálar um blöndun landnotkunar innan
nýrra hverfa, þar sem gert er ráð fyrir að ákveðinn hluti
hvers hverfis, sem nú eru kölluð blönduð svæði, verði
skilgreindur sem atvinnusvæði. Blöndun landnotkunar
og þéttari byggð stytta fjarlægðir milli heimila og
vinnustaða, breyta ferðavenjum og styrkja almennings-
samgöngur og skapa fjölbreyttari og skjólbetri hverfi.
Þessi tvö atriði eru grundvallaratriði í að bæta búsetu-
skilyrði í Reykjavík og gera borgina samkeppnis-
færa á alþjóðavettvangi.
Vístvænar samgöngur
Borg sem stefnir að alþjóðlegri ímynd þarf óhjá-
kvæmilega að efla almenningssamgöngur. í aðal-
skipulaginu er sett fram ákveðin stefna um aukinn for-
gang strætisvagna í gatnakerfinu. Með forgangi í um-
ferðinni er átt við sérakreinar fyrir strætisvagna og for-
gang þeirra á Ijósastýrðum gatnamótum. Aðalskipu-
lagið leggur ekki síður áherslu á eflingu göngu og hjól-
reiða, með samræmdu stígakerfi þar sem helstu um-
ferðaræðar eru þveraðar með brúm eða undirgöngum.
Aðalskipulagið gerir einnig auknar kröfur til gæða
þess umhverfis sem gangandi og hjólandi vegfarend-
ur búa við innan íbúðarhverfa og ekki síður innan at-
vinnu- og þjónustuhverfa.
Aukin gæði byggðar og bætt hönnun í borginni, ekki
síst í miðborginni, er frumforsenda þess að Reykja-
vík standi sig í samkeppni við aðrar borgir um fyrirtæki
og vinnuafl, ferðamenn, ráðstefnur og alþjóðlega við-
burði. Auka þarf gæði byggðar með vandaðri hönnun
bygginga, sköpun heildstæðra götumynda og götu-
rýma sem hafa þarfir hins gangandi vegfaranda í
fyrirrúmi. Til að skapa Reykjavík sérstöðu í alþjóðlegri
samkeppni borga verður að leggja áherslu á hið stað-
bundna við hönnun hins byggða umhverfis: að ná
fram heildaryfirbragði sem skírskotar til náttúrunnar,
landsins og sögunnar. Það er jafnmikilvægt að slíkar
tilvísanir birtist í einstökum húsbyggingum og í hinu
hannaða umhverfi milli húsanna.
Ný atvinnusvæði í nágrenni við mið-
berg og Háskóla íslands
Til að Reykjavík og ísland verði samkeppnisfær á
hinum alþjóðlega markaði, verður að skapa vænleg
71