AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Page 83

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Page 83
Ljósm.Hannes Lárusson. Vafurlogi #2, 2002. Eigandi Þorsteinn Steingrímsson. sem er mikilvægt í íslensku þjóðmenningarlegu sam- hengi, þá er handverkið hvorki græskulaust né saklaust í meðförum myndlistarmannsins, í besta falli tálbeita til að laða að áhorfanda. í því skyni hefur Hannes beinlínis skapað verk, tréendur sem hann nefnir lokkendur (Decoy) sem eru táknmyndir fyrir það aðdráttarafl sem listin hefur eða það sem listamaðurinn kýs að kenna við erótískt samband milli almennings og listaverks. Mynd- listarverk Hannesar hafa þó hingað til verið gagnslaus út frá sjónarmiði nytsemishyggjunnar. Þau eiga sér rætur í konsepti og snúast ekki hvað síst um myndlist sem tákn og um samband myndlistar og tungumáls. Með viðarofnum sínum úr steyptu pottjárni, „vafur- logunum" (heitið vafurlogi á sér rætur í Eddukvæðum og fornnorrænni þjóðtrú) stígur Hannes skrefið til fulls yfir í heim hönnunar. Þær fjórar frumgerðir ofna, sem Hannes hefur þróað og hverja um sig má útfæra í mis- munandi tilbrigðum, uppfylla allar kröfur sem gerðar eru til nytjahluta og til iðnhönnunar, án þess fyrir bragðið að segja skilið við eigindir myndlistarverks. Ofnskúlptúrar hans eiga sér enda rætur í myndlistarverkum hans, WARNING ATTRACTION Varúö: aðdráttarafl annes Lárusson hefur skapað sér sér- stæðan reit innan íslenskrar samtíma- myndlistar með fagurlega útskornum og oft á tíðum litríkum smáskúlptúrum sem hafa augljósa vísan í alþýðlegt handverk fyrri tíma, en einnig með innsetningum og rýmisverkum þar sem hann byggir yfir áhorfandann og allt um kring. Þótt myndlistarverk hans fjalli öðrum þræði um tengsl fagurfræði og notagildis, fagurfræði- legs hlutar og nytjagrips og um það að „kunna til verka“ fyrsti ofninn, sem var smíðaður árið 1994, var hugsaður sem hluti af myndlistarinnsetningu á tvíæringnum í Rostock í Þýskalandi. Þá sýndi Hannes innsetninguna „Hlýju“ í Nýlistasafninu árið 1997, þar sem þungamiðj- an, viðarofn í steinslíki, kynti salarkynni allan sýningar- tímann. Einn grundvallarþáttur myndlistar Hannesar hefur verið að búa til myndverk af þeirri menningu sem mótar sjálfsmynd okkar og tjáningu, e.k. erkitýpur íslenskrar menningar. íslendingar fyrri tíma áttu ekki ofna, lengst 81 AUÐUR ÓLAFSDÓTTIR, LISTFRÆÐINGUR

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.