AVS. Arkitektúr verktækni skipulag


AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2003, Side 17

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2003, Side 17
upplýsingaflæði og samvinna verða stöðugt mikilvægari. Þessi nýja hugsun eða „New ways of thinking” kemur fram víða í samfélaginu. Ný hugsun á sér stað í sveigjanlegu skólastarfi, þar sem kennarinn kýs að hafa mismunandi vinnustöðvar fyrir nemendurna þar sem bæði eru einstaklingsvinnustöðvar og hóp- vinna, vinna við tölvu, vinna á blað, vinna með vídeó o.s.f.r.v. Banka- kerfið hefur hugsanlega breyst hvað mest undanfarin ár, og þar hafa múrar verið felldir í huglægum skilningi. Innanhússarkitektar eittA hafa í hönnun sinni á þremur úti- búum Spron reynt að endurspegla þessa nýju hugsun í innréttingum og skipulagi. Múrarnir hafa verið felldir sjónrænt og allt skipulag aðlagað nýrri hugsun, þjónusta við viðskiptavininn er aðalatriðið, þjónustufulltrúinn er sýnilegur og öll starfsemin gagnsæ og laus við það vald sem áður var mjög áberandi í bönkunum. Mikið er framleitt af húsgögnum með vinnuvistfræði að leiðarljósi, lykilorðið er „fjölbreytni”, það á að breyta um stellingu, standa, sitja og ganga, þannig er næsta stelling ávalit sú besta. Fjölbreytni getur verið margvísleg og á ekki bara við um vinnustellingar. Það er tilbreyting í að hitta vinnufélagana í 5 mín. eða kasta á nokkrar körfur. Tilbreytingin getur líka verið í hönnuninni, lifandi og skemmtilegt umhverfi er hvetjandi og gleðjandi. Öll formlegheit eru að hverfa, set- stellingar sem þóttu dónalegar fyrir nokkrum árum þykja skynsamlegar núna, sittu öfugur, sittu á stól- arminum, settu lappirnar upp á borð, já, fáðu þér jafnvel rólu á skrifstofuna. Væri ekki huggulegt að sitja á litlum vinnufundi í rólu og róla sér fram og aftur eins og í gamla daga. Þegar fundir eru boðaðir verður sagt: viltu vera memm eða komdu á róló. ■ *spron Útibú Spron Spönginni -Öformleg setgrúppa þjónustufulltrúa og viskiptavinarins. Utibú Spron Spönginni -Barinn undirstrikar afslöppuð viðskipti. U ~ —1 C■ Útibú Spron Austurströnd - þjónustufulltrúar sitja í framlínu. Húsgögn eru valin með breytileika að leiðarljósi, starfsmaður getur valið um að standa eða sitja við vinnu sína. Spron in Austurströnd - Employees forvards face front. Furniture chosen to be either sit or stand.

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.