AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2003, Blaðsíða 60
Björn Ólafs arkitekt,
Teiknistofa í
Björn Ólafs hefur starfað nær sam-
fellt frá 1969 sem arkitekt í París,
þar sem hann stundaði nám. Fyrsta
hluta þessa tímabils eða á áttunda
áratugnum vann hann á stofunni
DLM architectes, og var þar aðal-
hönnuður stórra verka sem byggð
voru í París og nýborgum hennar,
Marne la Vallée, Cergy Pontoise og
Melun Senart. Meðal þeirra eru
hverfi sem hlutu alþjóðleg verðlaun
Evrópubandalagsins, frönsku
verðlaunin Palmarés National de
l'Habitat og Prix de la Beauté de
Paris. Á næsta áratug vinnur Björn
aðallega í samvinnu við sömu stofu
við mörg stórverk. Mikilvægast
þeirra er miðbærinn í borginni
Saint-Quentin-en Yvelines sem
byggður var 1985 -1987.
„Eftir þetta verk freistaði það mín að
starfa sem alþjóðlegur ráðgjafi í
tengslum við frönsk stórfyrirtæki.
Tók ég að mér verk í
Bandaríkjunum, í Egyptalandi, í
Englandi og dvaldist mánuðum
saman í þessum iöndum. í fram-
haldi af því og vinnu minni við mið-
bæi í Frakklandi mynduðust tengsl
við ísland þar sem ég hafði ekki
unnið í tvo áratugi. Voru þau ráð-
gjafastörf fyrir Borgarkringluna í
Reykjavík. Leiddist mér þó fljótt að
vinna ekki við hönnun húsa og hver-
fa sem mér hefur alltaf verið óvið-
ráðanleg ástríða. Sá ég því ekki eftir
því að taka þátt í tveim samkeppn-
um um miðbæi á síðasta áratug,
vinna þær og hanna síðan tvo mið-
bæi sem eru nú fullbyggðir. Þessi
verk, sem voru unnin í samvinnu við
DLM architectes, eru annað við nýja
stöð í hraðlestakerfi Parísar, Cergy le
SQY: Aoalverslunargatan
SQY: The main shopping street.
Haut, og hitt stækkun miðbæjar í
næsta nágrenni miðborgar Parísar, í
Montrouge. Á síðasta áratug hef
ég þó smám saman tekið að mér
fleiri og fleiri verk á íslandi og eru
þau nú meirihluti þeirra sem ég er
með í gangi. Ástæða þess er
sú, að ég álít að starfsreynsla mín
sé betur nýtt á íslandi en í minni
kæru heimaborg. Við þetta hefur
starfsumhverfi mitt gjörbreyst. Vinn
ég nú f lítilli vinnustofu í hjarta
J
58