AVS. Arkitektúr verktækni skipulag


AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2003, Side 22

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2003, Side 22
Guðrún Ingvarsdóttir, arkitekt Húsnæði Rafiðnaðar-sambandsins, Lífiðnar og Matvís að Stórhöfða 31 Við hönnun skrifstofuaðstöðu í dag eru gerðar auknar kröfur um sveigjanleika og kostnaðarvitund, á sama tíma og ímyndarsköpun og gæði vinnuumhverfis verða sífellt mikilvægari. Hönnun á húsnæði Rafiðnaðarsambandsins, Lífiðn og Matvís er gott dæmi um verkefni þar sem metnaðarfullur verkkaupi óskaði eftir húsnæði sem veitti lif- andi og aðlaðandi umhverfi fyrir metn- aðarfull og framsækin fagfélög. Fagleg markmið og kostnaðarvitund voru höfð að leiðarljósi og var verkkaupinn opinn fyrir hugmyndum sem gætu skapað skemmtilegt og hagkvæmt vinnuumhverfi. Húsnæðið skiptist á fjórar hæðir. Á jarðhæð er að finna skrifstofur og afgreiðslu Lífiðnar. Á annarri hæð er að finna skrifstofur Rafiðnaðar- sambandsins en á þriðju hæð fundaherbergi. Á neðstu hæð er að finna mötuneyti fyrir starfsmenn hússins, auk kennslurýma er henta til námskeiðahalds félaganna auk búningsaðstöðu. Arkís veitti í þessu tilviki heildarhönn- unarráðgjöf, þar sem litið var til allra atriða, allt frá heildarskipulagi hús- næðis til hönnunar húsgagna. Unnið var með þrjú endingargóð aðalefni, eik, gler og stál sem mynda aðlaðandi heildarsvip innan mismunandi hluta byggingarinnar. Við hönnun húsnæðisins var sveigjanleiki hafður að leiðarljósi. Sem dæmi má nefna að í skrifstofu Rafiðnaðarsambandsins skiptist vinnurými í annars vegar opið vinnurými sem breyta má eftir óskum og hins vegar hálflokaðar skrifstofur sem opna má með stórum hurðaflekum. Þetta býður upp á góð tengsl stjórnenda við starfsfólk, en veitir jafnframt nauðsynlegt næði er það á við. Leitast var við að ná dagsbirtu í sem stærstan hluta húsnæðisins og eru þannig glerflekar í hluta skrifstofuskilrúma sem hleypa dags- birtu að gangsvæðum við miðju hússins. Framkvæmdakostnaður var innan viðmiðunarmarka almenns skrif- stofuhúsnæðis, þrátt fyrir að aðs- taða og húsgögn séu sérhönuð að óskum verkkaupa. Með aðlaðandi ímynd sinni og aðstöðu er hús- næðið að Stórhöfða 31 gott dæmi um hvað hægt er að gera þegar arkitektar og viðskiptavinir ná að vinna að sameiginlegu markmiði. Hönnunarstjóri: Aðalsteinn Snorrason arkitekt FAÍ Innanhúsarkitektar: Thelma Björk Friðriksdóttir og Hallur Kristvinsson 20 ,v~'

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.