AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2003, Side 66
Þorvaldur S. Þorvaldsson, borgararkitekt
By g g i ng arl i stastef n a
fyrir
Reykjavíkurborg
í starfslýsingu um starf borgar-
arkitekts stendur meðal annars:
„Borgararkitekt vinnur að stefnu-
mótun sem lýtur að yfirbragði og
útliti hins manngerða umhverfis í
borginni, s.s. gatna, götugagna,
torga, grænna svæða, útsýnis,
lýsingar, götumyndar o.fl. sem hefur
afgerandi áhrif á heildarsvip og
fagurfræði borgarinnar”. í Ijósi
þessa var kallaður saman starfs-
hópur undir stjórn borgararkitekts í
haust til að undirbúa þessa stefnu-
mörkun. í starfshópnum eru:
Þorvaldur S. Þorvaldsson borgar-
arkitekt, formaður, Anna Margrét
Guðjónsdóttir, skrifstofu menningar-
mála, ritari, Guðmundur Pálmi
Kristinsson, fasteignastofu,
Hjörleifur Stefánsson, Arkitektafélagi
íslands, Ólöf Örvarsdóttir, skip-
ulagsfulltrúa, Pétur H. Ármannsson,
Listasafni Reykjavíkur,
Pjetur Stefánsson, Bandalagi
íslenskra listamanna, Dagný Helga-
dóttir, fasteignastofu, Dennis
Jóhannesson, Arkitektafélagi
íslands, Ágústa Kristófersdóttir,
Lístasafni Reykjavíkur.
Ýmis gögn hafa verið dregin fram
um stefnumörkun frá Norður-
löndum, Skotlandi og ýmis innlend
gögn eins og frumkvöðlaverk undir
stjórn Árna Ólafssonar frá Akureyri,
gögn frá Málþingi um menningar-
stefnu í byggingarlist sem haldið var
í Norræna húsinu í nóvember 2001
o.fl. Einnig hefur verið dregið fram
að stefnumörkun varðandi
byggingarlist er að finna í aðal-
skipulagi borgarinnar, deili-
skipulagssamþykktum, þróunar-
áætlun miðborgarinnar og ekki
minnst í hverfakortunum. Það er því
ýmislegt efni til sem vinna þarf út.
Á fyrstu fundum hópsins var farið í
hugarflug um spurningarnar: Hvers
vegna byggingarlistastefna, hver
eru sérkenni Reykjavíkur og hver er
sérstaða Reykjavíkur? Unnin hefur
verið samantekt úr því sem fram
kom á þessum fundum sem hér fer
á eftir:
Brekkustígur
Brekku - path.
64