AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2003, Blaðsíða 43
BYGGINGIN
Meginhugmynd tillögunnar er þrískipa bygging sem er 640m2. í miðjunni er umferðarás, í líkingu við gjá, sem liggur
frá forgarði inn um anddyrið, í gegnum bygginguna og út á veröndina með sjónlínu niður að vatninu. Umferðarásinn,
með glerþaki, tengir hina tvo hluta byggingarinnar. Öðrum megin við gjánna er bogadreginn veggur, borinn upp af
súlum, sem minnir á Pogalínur skipa víkinga. Handan við bogavegginn eru móttökurými gesta. Þau er opin og
aðgengileg gestum. Hinum megin er lokaður, örlítið hallandi, steinveggur. í gegnum steinvegginn er gengið inn í
einkarými sendiherra sem er vel einangrað frá móttökurýminu. Gjáin er slagæðin í sendiherrabústaðnum sem tengir
saman aðkomu, móttökurými, einkarými og verönd.
Móttökurými gesta
Á neðri hæð eru anddyri, eldhús, borðstofa og stofur. Á efri hæð er bókastofa, þar sem næði er til að halda fundi,
vinna og lesa. Bókastofan er í tengslum við stofur um stiga og í sjóntengslum við þær báðar svo og tjörnina og
vatnslistaverkið sem skapar rólegt andrúmsloft. Á efri hæð er gistiaðstaða tengd móttöku með lyftu sem jafnframt
þjónar bókastofu. Þessi rými eru því aðgengileg hreyfihömluðum. Á efri hæð er íbúð þjónustufólks í beinum
tengslum við eldhús á neðri hæð og þvottaherbergi, geymslur og tæknirými í kjallara.
Einkarými sendiherra
Aðkoman að einkarými sendaherra er um aðalanddyri en jafnframt er bakinngangur og innangengt frá honum í
bílageymslu. Á neðri hæð er rúmgott fjölskylduherbergi með eldhúskrók sem er í beinum tengslum við umferðar-
ásinn og efri hæðina. Þar eru svefnherbergin staðsett þannig að þau verði fyrir sem minnstu ónæði af móttökum.
Svefnherbergin snúa frá móttökusvæðinu og eru vel einangruð frá því. Hægt er að loka allt einkarýmið af þegar
opinberar móttökur eru.
LÓÐIN
í forgarði er aðkoma, bílastæði og aðalinngangur hússins. Húsið er vel merkt á steinvegg út við götu og þar er
fánastöngin staðsett. Frá inngangi er umferðarás í gegnum bygginguna sem tengir saman forgarðinn og veröndina
með sjónlínu niður að vatninu. Innangengt er úr móttökurýmum út á hellulagða verönd sem nýtist vel við móttökur
á góðviðrisdögum. Gróður og tré mynda skjól milli einkalóðar og opins svæðis við vatnið svo og nærliggjandi
lóða. Við borðstofu og bókastofu, handan glers, er tjörn með vatnslistaverki eftir íslenskan listamann. Vatnið og
listaverkið eru til þess fallin að skapa andrúmsloft hreinleika og kyrrðar.
EFNISVAL
Hönnun og efnisval endurspegla andstæður í áferð og lit. Sjónsteypa og grófir grágrýtisfletir mynda andstæður við
hvíta fínpússaða veggi, loft og viðarfleti. Leitast hefur verið við að nota efni sem tengjast íslandi, svo sem íslenskt
berg, norrænar viðartegundir að ógleymdri steinsteypunni sem íslendingar voru mjög fljótir að tileinka sér. Ennfremur
leggja höfundar áherslu á að notuð séu umhverfisvæn efni eins og kostur er.Burðarvirki hússins er úr járnbentri
steinsteypu sem er einangruð að utan. Yst er veðurkápa. Þrískipting hússins endurspeglast í efnisvali utanhúss.
Móttökuhlutinn er dökkur, klæddur grófhöggnu grágrýti en einkarýmið er með sléttri, Ijósri sjón steypuáferð.
Miðhlutinn er úr sérstöku einangrunargleri sem ekki hleypir hitageislum í gegnum sig. Gluggaprófílar eru úr dökk-
lituðu áli.
LAGNIR
Höfundar leggja áherslu á að tæknilegar útfærslur séu vandaðar, traustar og hagkvæmar í rekstri. Þær skulu vera í
samræmi við evrópskar kröfur varðandi orkusparnað og umhverfisvænleika. í kjallara hússins er aðaltæknirými
hússins. Hér er loftinntak og loftræsikerfi svo og inntak fyrir vatn og rafmagn. ■