AVS. Arkitektúr verktækni skipulag


AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2003, Page 26

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2003, Page 26
Yrki, arkitektar Sendiráð íslands í Tokyo Haustið 2000 keypti íslenska ríkið fjögurra hæða hús í höfuðborg Japans, Tokyo. Leitað hafði verið um nokkurt skeið að hentugu húsi sem hýst gæti bæði skrifstofur nýs sendiráðs og sendiherrabústað. Húsið er staðsett í Takanawa-hverfi þar sem fyrir eru sendiráð nokkurra ríkja. f upphafi var Ijóst að breyta þurfti talsvert innviðum hússins og fyrir- komulagi til þess að það hentaði þeirri starfsemi sem því var ætluð. Fyrir voru í húsinu 3 stórar íbúðir, en í kjallara var lítil íbúð ásamt geymsl- um. Innréttingar og allur búnaður hússins var kominn til ára sinna og þarfnaðist endurgerðar. Garðurinn umhverfis húsið er lítill, en þar sem þakið er flatt kom fljótt upp sú hugmynd að nýta það svæði sem þakgarð. Yrki arkitektar voru ráðnir til að hafa umsjón með hönnun. Á hönnunar- tíma var haft náið samráð við utan- ríkisráðuneytið, sem sá um forsögn, og Framkvæmdasýslu ríkisins, sem hafði umsjón og stjórn með fram- kvæmdum. Samið var við japanskt verktakafyrirtæki um verkið. Vinna við hönnun og framkvæmdir gekk vonum framar og einungis 10 mánuðum eftir að verkið hófst var framkvæmdum lokið. Á jarðhæð eru skrifstofur sendi- ráðsins. Þar eru skrifstofur sendi- herra, sendifulltrúa, ritara og annarra starfsmanna auk fundar- herbergis og móttökurýmis. Á annarri hæð eru móttökustofur, borðsalur og eldhús ásamt vín- og matargeymslum. Þar er einnig gisti- aðstaða fyrir gesti sendiherra. Á þriðju hæð eru svo einkahíbýli sendiherra. Við hönnun var leitast við að skapa einfalt, vandað og um leið „tímalaust” yfirbragð. Húsið er byggt á níunda áratugnum í ein- hvers konar evrópskum anda, gæti verið staðsett hvar sem er í Mið- Evrópu. Útveggir eru klæddir 24

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.