AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Saqqummersitaq pingaarneq:

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2003, Qupperneq 67

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2003, Qupperneq 67
Bryggjugata Harbour - road Hvers vegna byggingar- listastefna? Umhverfið hefur áhrif á mótun, heilsu og hamingju fólks og því er mikilvægt að huga vandlega að hinu manngerða umhverfi. Sífellt stærra hlutfall íbúa landsins mun búa í borgarumhverfi og dvelja í manngerðu umhverfi stærstan hluta ævinnar. Það eru mannréttindi að eiga gott umhverfi. Með byggingar- listastefnu er stefnt að því að sýna fram á efnahagslegan ávinning af góðu umhverfi, styrkja tengsl milli kynslóða og efla menningarlega samkennd íbúa. Áhersla er lögð á að sýna fram á möguleika borgarinnar um leið og hugað er að byggingararfinum. Að sjá það jákvæða við að hið óbygg- ða getur verið enn áhuga-verðara en það sem fyrir er. Borgin er ekki vandamál heldur býður hún upp á mikla möguleika og byggingarlistastefnan er leiðarvísir til að nýta þá möguleika sem best og til að fyrirbyggja mistök. Með sam- starfi við borgarbúa við mótun stefnunnar mun áhugi og skilningur aukast á gildi góðrar byggingarlistar og hinu manngerða umhverfi. Byggingarlistastefna getur orðið fræðsluefni til borgaranna um góða byggingarlist og upplýsingamiðill sem skapar umræðu. Reykjavík er ekki vartdamál heldur möguleikar. Sérkenni Reykjavíkur eru með hliðsjón af hugarfluginu: Reykjavík er nyrsta höfuðborg sjálf- stæðs ríkis. Ung borg sem hefur byggst að mestu á nýliðinni öld og er í stöðugum vexti og mótun. Grunnbyggðin og miðborgin eru á nesi og sjórinn allt um kring. Það er vindasamt á nesinu og byggðin teygir sig um hæðir og dalverpi í nálægð við ósnortna náttúru sem er mjög sérstæð: strendur, hraun, jökulöldur, árdalir og fjær fjala- hringur. Byggðin er almennt lág og vegna efnisnotkunar - bárujárn og stein- steypa - sem þarf yfirborðsmeðferð, er borgin litrík. Birtan er sérstök vegna legu á norðlægri breiddar- gráðu. Skil árstíða eru sterk frá djúpdimmu skammdegi yfir í eilífðarbirtu á sumarsólstöðum. Lág sól, vor og haust skapar einnig sérstakt spil Ijóss og skugga. Vegna þess hve borgin er ung ber hún ekki brag “virkisborgar" sem mótaði borgir Evrópu mjög á mið- öldum, né hinna þéttu íbúðahverfa umhverfis athafnir miðborga í kjölfar iðnbyltingarinnar. Borgina byggir einsleitt samfélag og íbúðargæði eru nokkuð jafnt dreifð. Hrein orka og vindar stuðla að hreinu lofti yfir borginni og heita vatnið er grunnur að upphituðum leikvöngum, gangstéttum, gang- stígum, götum og torgum og heilsulindum. Heilsuborgin Reykjavík. Sérstaða Reykjavíkur Höfuðborg norður í Atlantshafi á 64°N og eina borg landsins. Borgin tengist fyrsta landnámi norrænna manna - Ingólfur Arnarson. Byggðin er í nánum tengslum við óheft náttúruöfl og á jaðra að ónumdu landi. Norðlæg hnattstaða skapar sterk skil árstíða og vindasamt veðurfar en mjög sérstætt veðurfar miðað við hnattlegu vegna Golf- straumsins. Heitt vatn og hrein orka býður upp á enn ónýtta möguleika. íbúar Reykjavíkur eru einu borgar- búar landsins og miðað við aðrar borgir nágrannalanda eru íbúarnir ungir miðað við aldursdreifingu. Ung borg - ungt fólk - borg með vaxtarverki. Hér má sjá að við teljum mörg rök hníga að því að það sé skynsam- legt að borgin eignist sína byggingarlistastefnu og einnig að hún hafi mörg athyglisverð sérkenni og búi yfir sérstöðu á margan hátt. Nú er verið að byggja grind stefnunnar og hafin vinna við að fylla í hana. Haldinn var kynningar- fundur í Ráðhúsi Reykjavíkur í árs- byrjun 2003 og stefnt er að ýmsum kynningarfundum í framhaldi. Góð ráð og hugmyndir varðandi byggingarlistastefnu fyrir Reykjavíkurborg eru vel þegin af öllum í starfshópnum eða stefnt beint til borgararkitekts. ■ Þorvalds S. Þorvaldssonar, Pósthússtræti 7, sími 563 6600, netfang: thorvaldurs@rvk.is. 65
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.