AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.2005, Page 12
ÞEMA / THEME
Nýr „Renaissance" borga
byggt á Urban Task Force 1999. • Sigríður Kristjánsdóttir, skipulagsfræðingur
Nýr „renaissance" borga er yfirskrift
nýrrar sýnar á endurgerð borga, þar
sem áhersla er lögð á að fá fólk til
að búa inní borginni á nýjan leik. Nýr
renaissance borga byggir á af-
bragðs hönnun og skipulagi, vel-
líðan almennings og umhverfisvitund
sem búin er raunhæf efnahags- og
laga-umgjörð. Stefnan kemur fram í
Bretlandi við upphaf nýrrar aldar og
setur í dag mark sitt á borgarskipu-
lag um heim allan. Til að ná árangri
þarf nýja endurreisnarstefnan að ná
til sérhverrar götu.
Ef litið er til sögunnar má finna
fullt af dæmum um borgir þar sem
mannlífið blómstraði. Borgir voru
staðir þar sem nýjar hugmyndir
kviknuðu og þekking fluttist á milli
manna. Borgin var afsprengi lifandi
tengsla borgarbúanna.
Hins vegar, ef litið er á nýlegri
dæmi er þessu ólíkt farið. Nú er ráð-
andi aðskilnaðarstefna sem leggur
áherslu á að rjúfa samband fólks
við staði. Borgir þenjast út og til
verða úthverfa-borgir eins og Fönix,
Arizona (sjá 1. mynd). íslendingar
þurfa að stoppa við og hugsa hvort
þeir vilja rata niður sama villustíg og
erlendar þjóðir eða hvort við ætlum
að staldra við og velja réttu leiðina.
Borgir eru fyrst og fremst sam-
komustaður fólks. Borgin er rammi
sem heldur utan um mörg grunnkerfi
sem eru hluti af okkar daglega lífi.
Eftir því sem borgin stækkar verður
hún brothættari, því erfiðara er fyrir
þessi grunnkerfi að sinna hlutverkum
sínum. Borgin verður veikarí eftir því
sem fjarlægðin milli fólks og vinnu
vex.
Þetta kallar á nýja hugsun við
skipulagningu borga. Hið póstmód-
erníska samfélag sem við lifum og
hrærumst í eínkennist af auknu
upplýsingaaðgengi með tilkomu net-
tengingar, vaxandi umhverfisvitund
og breyttum lífsstíl með auknum
frítíma.
Hin nýja renaissance stefna leggur
áherslu á að góð hönnun sé lykillinn
að bættri borgarmynd. Til að skapa
sjálfbærar borgir framtíðarinnar þurfa
borgaryfirvöld að skuldbinda sig til
að nota góða og frjóa hönnun bygg-
inga, almenningssvæða og sam-
göngukerfa. Hér er átt við skipul-
agsferilinn sem og hina endanlegu
útkomu. Til að þetta megi takast er
nauðsynlegt að þverfaglegt hönnu-
narlið samþætti hinar ólíku forsendur
eins og fram kemur á 2. mynd.
1. mynd. Ósjálfbært mynstur úthverfanna (UrbanTask Force 1999).
/ Unsustainable planning of the suburbs (Urban Task Force 1999).