AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.2005, Síða 45
fengnir til að meta staðarvalið og
þeir nálguðust það með ólíkum
hætti, en komust allir að sömu
niðurstöðu: Vatnsmýrin er eindregið
betri kostur.
Flokka má staðarvalið
út frá nokkrum
meginþáttum:
1. Rýmisþörf og samanburður
við þarfalýsingu HR
2. Skipulags- og tæknileg
matsatriði
3. Stefnumarkandi þættir
og áhætta
Vægi þessara þátta verður að teljast
stigvaxandi frá 1 -3 þótt einhver
atriði í 1 og 2 geti haft veruleg áhrif
sem taka þarf tillit til.
1. Rýmisþörf og
samanburður við
þarfalýsingu HR
Tilboð Garðabæjar og Reykjavíkur
voru bæði metin fullnægjandi
hvað varðar skilgreinda rýmisþörf
HR. Rými til ráðstöfunar er raunar
metið ríflegt, auk þess sem auka
má nýtingarhlutföll lóða og stuðla
að samlegðaráhrifum við umhverf-
ið á báðum stöðum.
2. Skipulags-
og tæknileg
matsatriði.
Varðandi þennan þátt var farið yfir
fjölmörg atriði skipulags- og tækni-
legs eðlis sem voru mikilvæg. Þar
má nefna: staða skipulagsferlis,
lok upphafsframkvæmda, þróun
framtíðaruppbyggingar, vaxtar-
möguleikar, byggðaþróun og bú-
seta, gatnakerfi og umferð, almenn-
ingssamgöngur og stígar, veðurfar,
mengun, mannvirki og kostnaður.
Að mati ráðgjafanna var munur á
stöðu nokkurra atriða milli Urriða-
holtsins og Vatnsmýrarinnar.
Enginn þáttanna er aftur á móti
afgerandi einn og sér varðandi
val á staðsetningu.
3. Stefnumarkandi
þættir og áhætta
Það sem vegur mest í mati á staðar-
valin eru stefnu-
mark-andi þæt-
tir og áhætta við
staðarvalið.
Framtíðarsýn og
hugmyndafræði
HR byggist á
skýru leiðar-
Ijósi um nýsköpun,
tækniþróun,
samstarf og
alþjóðasamskipti.
Samkeppnishæfni
var skilgreind sem
aðdráttarafl skól-
ans fyrir hel-
stu markhópa:
nemend-
ur, starfsfólk og ytri
samstarfsaðila.
Við mat á þes-
sum þátt-um
ræddu matsaðilar
við starfsmenn
HR, forystumenn í
háskólasamfélag-
inu á íslandi og
erlendis og rýni-
hóp nem-enda.
Tekið var tillit til sjónarmiða fors-
varsmanna fyrirtækja og stofn-
ana sem HR boðaði á kynningar-
fundí og taldi áhugaverða samstarfs-
aðila eða áhrifaaðila á ákvörðun
um staðarval.
Það má ótvírætt ráða af áherslum
HR og þeirra aðila sem rætt var við,
að sterk „akademía", samstarf innan
mennta- og vísindasamfélagsins og
samvinna við stofnanir og fyrirtæki
atvinnulífsins eru grundvallarþættir
árangurs HR í alþjóðlegu háskóla-
samfélagi. Verulegur samhljómur
var í þessum hóp um staðsetningu
í Vatnsmýrinni. Sú staðsetning
styrkir stöðu HR og er leiðarljós
skólans vegna nálægðar við sterkt
þekkingar- og vísindasamfélag,
miðju atvinnulífs og margvíslegrar
háskólatengdrar starfsemi. Með
staðsetningu HR í Vatnsmýrinni
má ætla að svæðið verði einnig
augljós kostur fyrir rannsóknarstof-
nanir atvinnulífsins. Vatnsmýrin
kemur einnig tíl með að hafa
meira aðdrátt-arafl fyrir stofnanir
og sprotafyrirtæki en Urriðaholt.
Jafnframt má nefna að stjórnsýs-
lan, fjármálafyrirtæki, lögmanns-
stofur og annað viðskipta-líf er nær
Vatnsmýri en Urriðaholti. Ungt fólk
sem er í sambúð hefur einnig mun
meiri áhuga á að geta valið á milli
tveggja háskóla á sama svæði og
búa t.d. í stúdenta-íbúðum nálægt
Vatnsmýrinni í stað þess að þurfa
að gera upp á milli tveggja háskóla í
tíltölulega mikilli fjarlægð. Þekkingar-
og háskólaþorp í Vatnsmýrinni
mun þannig stuðla að þéttingu
byggðar á svæðinu og í nágrenn-
inu og skapa einstakt tækifæri
fyrir íslendinga.
í Vatnsmýri er kominn vísir að
þekkingarþorpi. Stefnumörkun
Reykjavíkurborgar mun stuðla
að myndun þekkingarþorps eða
-svæðis í Vatnsmýrinni og setja
talsvert landrými undir það í sam-
blandi við íbúðabyggð. Vatnsmýrin
býður upp á mótaða innviði og
afbragðs staðsetningu í Reykjavfk
fyrir mannlíf og menningu nálægt
hjarta borgarinnar, sem er metið
sem aðdráttarafl fyrir nemendur og
erlenda gesti og samstarfsaðila.
Vatnsmýrin er einnig vel staðsett
gagnvart ráðstefnu- og fundarhaldi
og gistiaðstöðu og má þar t.d. nefna
þá fjölgun hótela sem hefur orðið í
miðborginni og fyrirhugaða bygg-
avs 45