AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.2005, Side 54
ARKITEKIljR / ARCHITECTURE
Pínulitlar íbuðir
hugsanleg lausn húsnæðisvandans, sem vara-húsnæði?
Dr. Halldóra Arnardóttir, byggingarlistfræðingur og Javier Sánches Merina, arkitekt
Fasteignamarkaðurinn á Spáni stend-
ur frammi fyrir stóru vandamáli.
Flraðar þjóðfélagslegar breytingar
hafa ýtt undir gífurlegar hreyfingar
innan markaðarins og aukna þörf
fyrir lausnir sem koma til móts við
breytilegar aðstæður og efnahag
fólks. í apríl síðastliðnum lagði
spænska ríkisstjórnin fram nýja
tillögu um ódýrar og mjög litlar
íbúðir til leigu en með henni hefur
umræðan opnast, ekki síst gagnvart
því hvað við teljum reisulegt hús-
næði.
Spænska tilfellið
Verð á spænska fasteignamarkað-
inum hefur margfaldast á síðustu
árum. Flraður hagvöxtur á sér stað í
byggingariðnaðinum: verð á lóðum
og á húsnæði er hátt þar sem eftir-
spurnin er mikil. Staðan er orðin sú
að stór hópur ungs fólks dvelur í
foreldrahúsum allt fram yfir þrítugt.
Til þess að geta greint vanda-
málin og fundið hugsanlega mögu-
leika á lausnum, stofnaði ný ríkis-
stjórn alþýðuflokksins áður óþekkt
ráðuneyti, nefnilega Ráðuneyti
húsnæðismála. Það hóf rannsóknir
á félagslegum íbúðum þar sem
sveigjanleiki, tækni, vistfræði, varan-
leiki í samræmi við endurnýjun auð-
linda og umfram allt efnahagslegt
aðgengi voru frumþættir hönnun-
arínnar. Ráðuneytið leitaði jafnvel
fyrirmynda til annarra landa og birti
í dagblöðum dæmi frá Finnlandi þar
sem fullyrt var að þúsundir ungs
fólks byggju í 18 til 45 fermetra
íbúðum.
í samvinnu við vel þekkta arki-
tekta og undir skipulagningu arki-
tektsins Josep Bohigas lagði Flús-
næðismálaráðuneytið fram tillögu
að litlum 30 fermetra leiguíbúðum.
Þetta voru íbúðir ætlaðar ungu fólki
og þeim sem þyrftu tímabund-
ið ódýrt húsnæði, fólki sem væri
að fara í gegnum breytingaskeið
og þyrfti húsnæði í eitt til tvö ár
á meðan það fyndi stöðugleika.
Viðbrögðin við tillögunni hafa al-
mennt verið gagnrýnin. Menn sáu
aðalveikleika hennar liggja í því að
svo lítið rými biðu ekki upp á „reisu-
legar íbúðir". En María Antonia
Trujillo ráðherra Flúsnæðismálaráð
uneytisins svaraði því með því að
Hátt til lofts og vitt-ttt veggja mætti segja um þessa
“litlu" íbúð þeirra Lacaton & Vassal. (© Oriol Rigat). /
This „small“ flat by Lacaton & Vassal could be called
tall and sþacious. (© Oriol Rigat).