AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.2005, Side 55
fullyrða „að gæði húsnæðisins væru
ekki mæld í fermetrum".
Tillögur arkitektanna
Sex tillögur voru kynntar á sýningu
byggingariðnaðarins Construmat
í Barcelona í apríl 2005. Þær voru
afrakstur viðurkenndra arkitekta eins
og, frönsku arkitektastofunnar Anne
Lacaton og Jean Philippe Vassal og
arkitektastofu þeirra Ihaki Ábalos og
Juan Herreros í Madrid, sem og yngri
arkitekta eins og Santiago Cirugeda
og Gustavo Gili Galfetti. Sömuleiðis
voru nemendunum Jorge Cortés,
Sergio García og Borja García annars
vegar og Miquel Suau Martorell hins
vegar boðið að koma með tillögur
þar sem þeir voru vinningshafar 17.
Habitácola stúdenta-samkeppninnar
sem var skipu-lögð af ARQ-INFAD í
Barcelona.
Almennt voru tillögurnar vandaðar
þó spurning væri hvort þær uppfylltu
skilyrðin sem þeim höfðu verið sett.
Svo átti við um tillögu arkitektanna
Lacaton & Vassal því hvorki var
íbúðin lítil né notuð ódýr efni. Þau
ákváðu að fylgja sinni hefðbundnu
stefnu að hugsa út í að skapa sem
mest rými og fermetrafjölda, þó
innan ramma ákveðinnar fjárhags-
áætlunar. Þetta var forgangsatriði
áður en hugsað var út frá því
„minnsta". Þau komu til móts við
þarfir verkefnisins um minnsta rýmið
með því að byggja tillögu sína á
einni hugmynd: að margfalda notaða
rýmið. Þannig mældist íbúðin 36 X
36 fermetrar með tvöfaldri lofthæð
og hlaut heitið Tvöfalt hús.
Svipað var upp á teningnum
hjá Ábalos & Herreros. Þeir reistu
frummynd af íbúðinni sem byggð-
ist á einingu með hærri lofthæð en
venja var til. Þessi eining hafði einn
tæknilegan vegg þar sem öllum
lögnum og öðrum nytjaþáttum var
komið fyrir, auk geymslurýmis, en
til þess að nýta rýmið enn frekar
var gengið inn í íbúðina í gegnum
baðherbergið. Afleiðingin var sú að
aðal- íverurýmið var opið og bauð
upp á möguleika um hvers konar
notkun. En auk þessa rýmis lögðu
arkitektarnir til annað „herbergi"
utandyra, nokkurs konar grænmetis-
garðsvalir, „hortus conclusus", sem
komu til móts við þær lífsaðstæður
sem einkenna Miðjarðarhafsbúa.
Sá arkitekt sem hefur beint komið
hugmyndum sínum í framkvæmd
varðandi litlar 30 fermetra íbúðir er
Santiago Cirugeda. Á sýningunni
tók hann skýrt fram að þessar íbúðir
væru ætlaðar fólki með lítinn fjárhag
og lagði til að nota endurunnin efni
sem auðvelt væri að reisa og jafnvel
að verðandi íbúar þeirra myndu taka
þátt í byggingu þeirra. Slíkt myndi
minnka kostnað og gera þær bæði
persónulegri og reisulegri.
Framkvæmanleiki
vara-húsnæðisins
Án efa tókst Húsnæðismálaráðu-
neytinu að opna umræðuna gagnvart
húsnæðisvandanum. Rannsóknir
þess beindust að því að leita að
lausnum fyrir tímabundið ástand
þrátt fyrir að núverandi reglugerðir
meinuðu byggingu þessara íbúða
vegna þess að þær uppfylla ekki lág-
marks flatarmál þess sem leyfilegt er.
Ráðuneytið er því að íhuga breytingu
á lögunum og gera staðalinn
sveigjanlegri.
Málið er þó ekki einfalt, frumþæt-
tir hverrar íbúðar eru þeir sömu
burtséð frá stærð hennar og það má
leiða að því rök að smærri íbúðir eru
hlutfallslega dýrari en þær stærrri
ef horft er á sömu gæði. Ef gert er
ráð fyrir að verð á lóðum lækki ekki,
mun því ástandið ekki batna. Einnig
er möguleiki að verðlagið á þessum
litlu íbúðum muni byrja að hækka
um leið og markaðurinn er settur
frjáls. Tengiliðir og hagsmunaaðilar
byggingariðnaðarins eru það margir
að ráðuneytið getur ekki eitt verið
gert ábyrgt. Það er ekki nóg að taka
viljann fyrir verkið. ■
avs 55