AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.2005, Qupperneq 58
AUGLÝSING
Nýtt sýningarrými hja Hegas ehf.
í Kópavogi
Hegas ehf. er sérhæfð heildverslun með sérstaka áherslu á hráefnisvörur, íhluti og verkfæri fyrir innréttinga- og tré-
iðnaðinn.
Einn þeirra byrgja sem Hegas selur vörur frá er Hettich í Þýskalandi, en það fyrirtæki er stærsti framleiðandi á
hús-gagnafittings í heiminum í dag. Þeir bjóða geysilega mikið úrval af þessum vörum eða yfir 10.000 vöruhluti og
eiga flesta þeirra á lager. Meðal þess sem þeir bjóða eru hlutir eins og lamir, brautir, samsetningafittings, renni- og
fellihurðabrautir, höldur, innréttingaljós, skrifstofufittings og ýmsa aðra íhluti og lausnir fyrir innréttingar og húsgögn.
Að undanförnu hefur Hettich verið að koma fram með mikið af nýjungum eins og hljóðlausar lokanir á skúffum og
hurðum. Þá bjóða þeir fjölda nýjunga sem bæta nýtingu eldhúsa, svo sem fjölbreytt úrval skiptinga í skúffur, stærri
skúffur, skúffur með rafmagnsinnstungum og sökkulskúffur, svo aðeins fátt eitt sé nefnt..
Þá bjóða þeir nýjungar í renni- og fellihurðum fyrir alls kyns innréttingar, nýjungar í skrifstofuhúsgögnum eins og t.d.
„Orga tower“ sem er einskonar útdregin hirsla (turn) fyrir nútíma skrifstofu, þar sem áhersla er lögða á minni pappír
en meira af floppy og cd diskum til geymslu gagna.
Ennfremur bjóða þeir margar nýjungar í Ijósum svo sem halogenljós og lágspennuljós. Þar eru í boði allt í senn,
vinnuljós fyrir innréttingar, skraut- og næturljós.
Til að koma öllu þessu sem best á framfæri, hefur Hegas ehf. sett upp nýja og glæsilega sýningaraðstöðu. í henni
eru uppsettar innréttingar svo viðskiptavinurinn geti skoðað vörurnar sem best í sínu rétta umhverfi. Því sjón er jú
sögu ríkari.
Yfirlitsmynd af sýningarrými.
Nætur og skrautlýsingar.
Mikið ún/al af skiptingum í skúffur.
Fittings biblía 5 kg. vörulisti.
Útdregnir turnar fyrir nútíma skrifstofu.
5 8 avs