Iðjuþjálfinn - 2022, Side 3

Iðjuþjálfinn - 2022, Side 3
1. tölublað 20223 Efnisyfirlit Ritnefndarpistill 3 Pistill formanns 4-6 Viðtalið: Iðjuþjálfast á hverjum degi 7-12 Saga fags og fræða, Iðjuþjálfun á Íslandi 1945–1997 14-22 Geðdagurinn 23 Málþing Veltek: Sjálfbær þjónusta, sjálfstæðir notendur 24-27 Hlutverk iðjuþjálfa í leikskólum 28-29 Fleiri iðjuþjálfar í grunnskólum – öflugra skólastarf 30-32 Siðaregla 4,3 - Iðjuþjálfi og samfélagið 32 Er ekki bara best að taka nema! 34 Dans- og hreyfimeðferð fyrir félagslega heilsu á Íslandi, tillaga að meðferðaráætlun 35-36 Nám á vettvangi 38-39 Skynvitund - að skilja eigin skynjun 40 Vöxtur og vegferð 41 Iðjuþjálfun, starfsendurhæfing og náttúrumeðferð 42-46 Nám í Svíþjóð, vinna á Íslandi 47 Iðjuþjálfun í Búlgaríu 48-49 Veggspjöld nemenda 50-51 Ritnefnd: Erna Kristín Sigmundsdóttir, formaður og ritstjóri Árný Berglind Hersteinsdóttir Guðrún Friðriksdóttir Hafdís Bára Óskarsdóttir Margrét Elva Sigurðardóttir Fræðileg ritstjórn: Gunnhildur Jakobsdóttir Sara Stefánsdóttir Sigrún Kristín Jónasdóttir Stjórn IÞÍ: Þóra Leósdóttir, formaður Erna Sveinbjörnsdóttir, varaformaður Katrín Ósk Aldan Gunnarsdóttir, gjaldkeri Harpa Björgvinsdóttir, ritari Björg Jónína Gunnarsdóttir, meðstjórnandi Varamenn: Stefán E. Hafsteinsson Svava Arnardóttir Iðjuþjálfinn Ritnefnd áskilur sér rétt til að stytta texta og færa til betri vegar. Vitna má í texta blaðsins ef heimildar er getið. Prófarkarlesari: Bjarni Björnsson Forsíðumynd: Margrét Elva Sigurðardóttir Umbrot: Sylvía Kristjánsdóttir Kæru lesendur. Nú þegar sígur á seinni hluta ársins 2022 og heimurinn er að jafna sig eftir heimsfaraldur lítum við um öxl. Umræða um aðstæður á heilbrigðisstofnunum hefur verið áberandi og vinnuálag mikið og oft á tíðum ómanneskjulegt. Þá hefur álag í skólum og leikskólum landsins verið umtals- vert undanfarið og fara engir starfsmenn þar varhluta af því. Sífelld krafa um að hlaupa hraðar getur hæglega endað með því að einhverjum skriki fótur og streita kemur ekki aðeins niður á heilsu og lífsgleði starfsmanna heldur einnig á fjölskyldum þeirra. Iðjuþjálfar þekkja vel hugtakið um jafnvægi í daglegu lífi og geta lagt sín á lóð á vogaskálarnar með hvatningu og valdeflingu að vopni. Við getum verið í framlínu forvarna og lykilstarfsmenn í endurhæfingu. Um leið getum við hugað að okkur sjálfum og munað eftir að setja súrefnisgrímuna á okkur fyrst til að geta verið til staðar fyrir alla hina. Í blaðinu í ár fáum við að lesa um sögu fagsins okkar frá 1945 til ársins 1997, fáum að kynnast iðjuþjálfum sem menntuðu sig erlendis og öðrum sem vinna í útlöndum og starfi iðjuþjálfa í leik- og grunnskólum. Við fáum að skoða veggspjöld nemenda, skyggnast inn á málþing, lesa um nám á vettvangi og ýmislegt fleira. Það er von ritnefndar að lesendur hafi gaman af og njóti þess að tylla sér niður með lesbrettið og glugga í blað okkar allra. Góðar stundir. Ritnefndarpistill:

x

Iðjuþjálfinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.