Iðjuþjálfinn - 2022, Blaðsíða 51
Heiðraðu hundinn vegna húsbónda hans
Áhrif hunda á lífsgæði og andlega líðan
Bakgrunnur
Líf manna og hunda hefur
verið samtvinnað í
gegnum aldirnar og eru
þeir eitt af algengustu
gæludýrunum á Íslandi.
Hundahald getur haft áhrif
á lífsgæði og andlega
heilsu. Hlutverkið tengist
hlutdeild í iðju, þátttöku
og virkni daglegs lífs.
Aðferðafræði
Stuðst var við fimm þrepa
aðferð Arskey og
O’Malley (2005) um gerð
kögunaryfirlits.
Leitarvélarnar
EBSCOHost, Web of
Science, Scopus og
ProQuest voru notaðar við
gagnaöflun.
Leitarorðin voru á ensku
og voru byggð á
hugtökum um andlega
heilsu, lífsgæði og hunda.
Alls voru 19 greinar
notaðar í kögunaryfirlitið,
þar af 11 með
megindlegu sniði, 5 með
eigindlegu og 3 með
blönuðu sniði.
Niðurstöður
Lífsánægja og vellíðan
Lífsánægja og vellíðan jókst við framkvæmd
athafna tengdum hundum. Hegðunarvandi hunda
og skuldbindingin gat haft neikvæð áhrif á líðan.
Ósamræmi er í niðurstöðum hvort áhrif hundahalds
á vellíðan og lífsánægju séu nægileg til að teljast
marktæk.
Andleg heilsa
Erfitt er að greina áhrif hundahalds á andlega
heilsu vegna samverkandi þátta. Hundahald hafði
almennt jákvæð áhrif á lundarfar, minnkaði
streitueinkenni og dró úr einmannaleika. Hlutverkið
gat valdið kvíða eða vanlíðan vegna óæskilegrar
hegðunar hundsins og skuldbindinga.
Félagslegur stuðningur og samskipti
Hundarnir voru hluti af fjölskyldunni og þeir styrktu
félagslegt tengslanet eigenda. Þeir höfðu róandi
áhrif sem auðveldaði samskipti við annað fólk.
Hreyfing og virkni
Hundaeigendur hreyfðu sig meira en þeir sem ekki
áttu hunda. Hreyfingin hafði þó ekki bein áhrif á
andlega heilsu eigenda en þeir voru oftar
meðvitaðari um heilsu sína.
Samantekt
Órjúfanlegur hluti lífsgæða
og almennrar heilsu eru
lífsánægja og vellíðan,
andleg heilsa, félagslegur
stuðningur og samskipti
ásamt hreyfingu og virkni.
Þemun fjögur eru samtengd
og hafa áhrif á hvert annað.
Almennt eru rannsóknir
margþættar og gefa
vísbendingar um ólík áhrif
hundahalds.
Hundar höfðu jákvæð,
hlutlaus og neikvæð áhrif á
heilsu og lífsgæði fólks.
Niðurstöður sýndu fram á
aukna vellíðan, virkni og
færri einkenni þunglyndis,
streitu og kvíða.
Athugavert er að ákveðinn
hópur sækir í félagslegan
eða andlegan stuðning frá
hundum.
Mikilvæg innsýn fæst við
þekkingu á áhrifum hunda á
líf eigenda. Iðjuþjálfar geta
nýtt sér þekkinguna til að
efla heilsu, virkni og líðan
hundaeigenda.
Heimildir
Arksey, H., og O’Malley, L. (2005).
Scoping studies: Towards a
methodological framework.
International Journal of Social
Research Methodology, 8(1), 19-
32.
Hafa má samband við
Söndru Lynch (ha190748@unak.is)
fyrir frekari upplýsingar.
Teymið
Guðmunda Steina Jósefsdóttir
Hugrún Erla Karlsdóttir
Sandra Kristín D. Lynch
Unnur Oddný Einarsdóttir
Rannsóknarspurning
Hver eru áhrif hundahalds
á lífsgæði og andlega
heilsu fólks?
Frekari rannsóknir
Þörf er á frekari rannsóknum
innan iðjuþjálfunar og
öðrum heilbrigðisstéttum
hérlendis um áhrif
hundahalds.
Andleg
heilsa
Félagslegur
stuðningur
og samskipti
Hreyfing og
virkni
Lífsánægja
og vellíðan