Iðjuþjálfinn - 2022, Blaðsíða 28
Iðjuþjálfinn I Fagblað iðjuþjálfa28
Ég útskrifaðist vorið 2014 og þá voru fá störf í boði svo ég
ákvað að vinna ekki sem iðjuþjálfi í einn vetur og nýta tímann
í að horfa í kringum mig eftir störfum við mitt hæfi. Haustið
2015 var ég ráðin inn sem iðjuþjálfi á leikskólann Lundarsel á
Akureyri. Áður hafði enginn iðjuþjálfi starfað á Lundarseli og
vissi ég lítið út í hvað ég var að fara – en að stökkva í djúpu
laugina og að hugsa sem minnst virkar oft best! Ég byrjaði
á yngstu deild skólans þar sem ég starfaði sem almennur
kennari en gat samt nýtt mína þekkingu í starfinu. Það var
leitað til mín varðandi ýmislegt og ég hélt til dæmis fyrirlestur
á starfsmannafundi um vinnuvistfræði. Árin 2016–2018 var ég
stuðningur inn á deild með einu til tveimur börnum þar sem
ég fylgdi þeim eftir og sá um námskrána þeirra, hélt utan um
foreldrasamskipti og allt sem þurfti að fylgja eftir.
Árið 2020 byrjaði ég í sérkennsluteymi leikskólans. Það teymi
samanstendur af sérkennslustjóra, iðjuþjálfa og þremur
leikskólakennurum. Starfið breyttist til hins betra við þessa
þróun. Teymið vinnur saman sem ein heild yfir allan skólann
og skiptist á að sinna kennslu barna með sérþarfir. Kennslan
felur í sér einstaklingsmiðaða nálgun fyrir hvert og eitt barn
Hlutverk iðjuþjálfa
í leikskólum
og við mætum þeim þar sem þau standa hverju sinni. Teymið
sinnir málörvun, félagsfærniþjálfun, gróf- og fínhreyfiþjálfun
sem og vitsmunalegri þjálfun. Þá fyllum við út matslista
t.d. fyrir skóladeild Akureyrarbæjar eða Ráðgjafar- og
greiningarstöðina ef börn þurfa að fara í frekara mat. Þá höfum
Þórunn Sif Héðinsdóttir
iðjuþjálfi á Lundarseli
Útibingó þar sem unnið er með nærumhverfi barnanna. Farið er
í göngutúr og hlutirnir á bingóspjaldinu eru fundnir.
Við keyptum spil á leikskólann og bættum verkefnum við. Hér er unnið með samstöfur orða, fyrsta staf í dýraheiti og að lokum mynstur
í fatnaði.
Kynning: