Iðjuþjálfinn - 2022, Blaðsíða 41

Iðjuþjálfinn - 2022, Blaðsíða 41
Iðjuþjálfinn I Fagblað iðjuþjálfa41 Námskeiðshaldarar eru Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir iðjuþjálfi með MA í öldrunarfræðum og Sigrún Jónsdóttir ADHD- og einhverfumarkþjálfi og einnig þroskaþjálfi. Þær eru báðar með starfstofur sínar í fallegu umhverfi St. Jó sem bera heitin: Heimastyrkur og Míró, markþjálfun og ráðgjöf. Í störfum sínum með börnum, ungu fólki og fullorðnum hafa þær mætt mörgum einstaklingum sem eru með greiningu eða grun um að vera á einhverfurófinu. Mörg þeirra eru með lítið sjálfstraust, eiga erfitt með að ráða við athafnir hvers- dagsins, eru lituð af brotnum samskiptum við fjölskyldu og vini og hefur gengið illa að feta sig í námi eða vinnu. Þessi reynsla hefur skapað ákveðinn vítahring sem margir eiga erfitt að komast út úr án ráðgjafar og stuðnings við daglega iðju og samskipti. Uppsetning á námskeiðinu Með sína ólíku sérfræðiþekkingu ákváðu Guðrún og Sigrún að sameina krafta sína og útbjuggu sjálfstyrkingarnámskeiðið Vöxtur og vegferð sem hefur það markmið að veita þátttak- endum sem eru 16 ára og eldri skilning á líðan sinni og færni við ýmsa iðju, tengt m.a. að sinna sjálfum sér, heimilishaldi, fjölskyldu og félagslegri þátttöku, námi og vinnu eftir því sem við á. Fræðslan fjallar m.a. um stýrifærni heilans, skynjun líkamans og skynúrvinnslu, félagslegan þroska og samskipti, greindarsviðin, áhugamál og jafnvægi í daglegri iðju. Auk þess eru upplýsingar veittar um gagnlegar aðferðir til að takast á við þann iðjuvanda sem getur átt sér stað og til að bæta líðan og heilsu. Unnið er út frá hugmyndafræði valdeflingar og boðið upp á verkefni sem styðja við skilning á eigin aðstæðum og persónulegan vöxt, auk þess sem kostur gefst á að setja sér markmið í lok námskeiðs sem styður við vegferð þeirra í lífinu. Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir iðjuþjálfi með MA í öldrunarfræðum Sigrún Jónsdóttir ADHD- og einhverfumarkþjálfi og þroskaþjálfi Mikill jafningjastuðningur Umræður tímanna ýta undir jafningjafræðslu meðal þátttak- enda og reynast oft mörgum mikill stuðningur. Námskeiðið fer fram sem bæði stað- og fjarnámskeið þar sem áhugi hefur kviknað gagnvart námskeiðinu víða um land og mikilvægt að búseta sé ekki hindrun. Mikil ánægja er meðal þátttakenda á námskeiðinu almennt, sem endurspeglast í námskeiðskönnun sem er lögð fyrir í lokin. Þar kemur fram að þeim finnst mik- ilvægt að geta deilt eigin reynslu, þeim líður vel í tímunum og upplifa fræðsluna gagnlega. Fyrirhugað er að útbúa framhaldsnámskeið og fræðslukvöld fyrir aðstandendur þar sem mörg þeirra upplifa skort á skilningi frá aðstandendum gagnvart þeirra áskorunum í daglegri iðju, heilsufari og líðan á fullorðinsárum. Guðrún er iðjuþjálfi með norrænt MA í öldrunarfræðum (NordMaG) og stofnandi Iðjuþjálfun Heimastyrkur þar sem hún veitir ráðgjöf, þjónustu og endurhæfingu, www.heima- styrkur.is Einnig veitir hún fjarheilbrigðisþjónustu á skjá fyrir þá sem eru búsettir úti á landi gegnum öruggan fjarfunda- búnað auk ráðgjafar og þjónustu fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og félagasamtök. Í Lífsgæðasetrinu St. Jó í Hafnarfirði fer fram sjálfstyrkingar - námskeiðið Vöxtur og vegferð sem er fyrir fólk með greiningu eða grun um að vera á einhverfurófinu. Kynning: Vöxtur og vegferð

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.