Iðjuþjálfinn - 2022, Blaðsíða 27

Iðjuþjálfinn - 2022, Blaðsíða 27
1. tölublað 202227 Eva sagði einnig frá Evandos lyfjaskammtara sem hefði reynst vel og stóraukið öryggi hvað varðar rétta lyfjagjöf og á réttum tíma. Deborah sagði frá skol- og þurrksetum á salerni sem hafa verið teknar í notkun og aukið á sjálfstæði notenda við þær aðstæður ásamt að fækka sýkingum og innlögnum. Sjúklingafræðsla á nýjum miðlum Aukin heilbrigðisfræðsla stuðlar að virkari notendum og þess vegna mikilvægt að styðja við sjálfræði sjúklinga í ákvarðana- töku ásamt að efla færni og sjálfsöryggi sjúklinga til að sinna eigin umönnun og efla þátttöku sjúklings í meðferð. Dr. Brynja Ingadóttir, sérfræðingur í hjúkrun og forstöðumaður Miðstöðvar um sjúklingafræðslu á LSH, ræddi um markmið fræðslunnar, en rannsóknir sýna að sjúklingar hafa miklar væntingar til fræðslu. Nú er lífeðlislegri fræðslu best sinnt; að fræða um eðli sjúkdóms, lyf og fylgikvilla en minni áhersla lögð á að fræða um reynsluna af því að fá sjúkdóminn, siðfræðina og félagsleg atriði. Heilsu- læsi er mikilvægt í bata sjúklingsins og meðferðarheldni. Brynja sagði frá nýjungum í miðlun sjúklingafræðslu, t.d. Landspítalaappinu, þar getur sjúklingur séð upplýsingar um eigin innlögn, svarað spurningalistum og fylgst með eigin heilsufari. Einnig Heilsumeðveru, sem er samskiptagátt innan Heilsuveru og NúnaTrix sem er sprotafyrirtæki hennar á sviði heilbrigðis og sjúklingafræðslu, stofnað 2019. Brynja hannaði tölvuleik fyrir börn sem eru á leið í svæfingu, hann heitir Mína og er ókeypis til niðurhals á veitum. Hann hefur verið þýddur á ensku og finnsku. Einnig gerði hún leik þegar hún var í doktorsnáminu um verkjameðferð eftir skurðaðgerð. Brynja vildi einnig minna á að persónuleg samskipti notenda og heilbrigðisstarfsfólks væru dýrmæt og mikilvæg til fræðslu og nýta þyrfti tímann vel. Miklu skipti að finna fjölbreyttar leiðir við miðlun fræðslu og að hægt væri að endurtaka þær eftir hentugleika skjólstæðinga. Fjallabyggð í fararbroddi Sveitarfélagið Fjallabyggð er orðið vettvangur tilrauna og þróunar á sviði öldrunarþjónustu. Helga G. Erlingsdóttir kynnti nýsköpun og þróun í öldrunarþjónustunni. Þróa á nýjar þjón- ustuleiðir eða úrræði eftir því sem tilefni gefst til. Helga benti á að yfir 20% íbúa Fjallabyggðar væru 67 ára eða eldri. Nú er farin af stað umbreyting á núverandi dvalarheimilisrýmum á Hornbrekku í sveigjanlega dagþjálfun, ásamt samþættingu á heima- og stuðningsþjónustu, velferðartækni, forvörnum og verkefnastjórn. Vinnulíkan er tilbúið til næstu 4 ára. Vilji heimamanna er mikill og umhverfið er styðjandi, en frekari þróun strandar á samningum við Sjúkratryggingar Íslands. Sameiginlegur flötur mikilvægur Að lokum dró Sigurður E. Sigurðsson saman efni málþingsins og benti á hversu miklu skipti að hafa sameiginlegan vinnuflöt þar sem sprotafyrirtækin og heilbrigðisstofnanir gætu unnið saman og látið hlutina gerast, mögulega hraðar en ef ríkið kæmi að málum. Að þingi loknu var undirrituð samstarfsyfir- lýsing milli Fjallabyggðar, HSN og Veltek. Málþing eins og þetta má telja nauðsynlegt, það er vett- vangur hugmynda og fræðslu auk þess sem mikil hvatning felst í reynslusögum annarra og brýnir það sem skiptir máli í málefnum líðandi stundar. Veltek.is Healthcareatdistance.com Arcticiceland.is Dr. Brynja Ingadóttir, forstöðumaður miðstöðvar um sjúklingafræðslu LSH. Helga G. Erlingsdóttir.

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.