Iðjuþjálfinn - 2022, Blaðsíða 9

Iðjuþjálfinn - 2022, Blaðsíða 9
1. tölublað 20229 iðjuþjálfinn? Getum við útskrifað?“ Við höfðum alltaf lokaorðið. Læknarnir báru mjög mikla virðingu, þó þeir skildu ekki alltaf hvað við vorum að gera, bara ef iðjuþjálfinn gaf grænt ljós, þá var útskrift.“ Superman var fyrirmynd nýjunga Kristín og félagar sinntu fjölmörgum verkefnum á LSH og reynslan byggði upp ákveðna sérþekkingu – í hennar tilfelli í tækniþróun og velferðartækni. „Líkt og ég hef nefnt þá var ég í mörg ár í MND-teyminu sem var og er ákaflega faglega flott teymi og ofboðslega flott þverfagleg vinna. Við vorum t.a.m. gjarnan fengin inn sem ráð- gjafar í hin ýmsu sérverkefni. Eitt af þeim verkefnum sem ég kom að var ráðgjöf fyrir Velferðarráðuneytið þegar leggja átti frumvarp fyrir þingið um hvort einstaklingar með taugasjúkdóma ættu þess kost að geta framlengt líf sitt með því að tengjast við öndunarvél. Það fór í gegn hjá Alþingi 2010 ef mig misminnir ekki,“ rifjar hún upp. Þá hafði Kristín töluvert komið að málefnum er vörðuðu að efla lífsgæði og iðjufærni þeirra sem voru barkaþræddir í öndunar- vél. Ekki síst reyndi á það þegar farið var að barkaþræða drengi með Duchenne-sjúkdóminn og vélarnar betri og lífið hjá þessum einstaklingum. Fram að þessu höfðu flestir drengir með Duchenne látist í kringum tvítugsaldurinn, en tækninni fleygði fram á þessum árum. „Allt í einu fer að verða ný vakning fyrir að það sé möguleiki að viðhalda og lengja líf með öndunarvél. Það sem varð til þess að við iðjuþjálfarnir fórum að láta okkur þennan málaflokk varða var að ungur piltur með Duchenne fer í öndunarvél og voru lífslíkur hans ekki taldar miklar í byrjun. Það sem svo gerist er að hann bara lifir, og sífellt kemur nýr dagur og það bjóst enginn við því og enginn vissi í raun hvað átti að gera við hann. Þessi piltur var aldrei með neina beiðni um iðjuþjálfun,“ lýsir hún. „Þar sem ég geng framhjá herberginu hans, á hverjum degi, þá sé ég hvar hann situr í hjólastól barkaþræddur í öndunarvél og er í raun bara plöggaður í vegginn – bara situr og horfir á sjónvarpið allan daginn. Það þorði enginn að taka úr sambandi og fara með hann fram á gang eða færa hann milli staða. Þarna fórum við iðjuþjálfarnir að tala saman um að þetta gengi ekki, það hlyti að vera eitthvað hægt að gera. Það byrjaði þannig með þessum eina einstakling að við fórum að skoða, hvernig væri unnið með einstaklinga sem bundnir voru við öndunar- vélar erlendis og okkar helsta fyrirmynd varð Christopher Reeves, leikarinn sem lék Superman í samnefndum kvik- myndum og sem hlotið hafði háan mænuskaða og lifði það af með því að verða barkaþræddur og í öndunarvél. Við í rauninni afrituðum hans hjólastól og fórum í farsæla samvinnu við starfsfólkið á lungnadeildinni og við TR með þetta verkefni. Skemmst er frá því að segja að pilturinn útskrifaðist heim eftir hálft ár og átti eftir því sem ég best veit, nokkuð farsælt og viðburðaríkt líf við leik, nám og störf og síðan þá hafa fjölmargir einstaklingar lifað með ágætis lífsgæði í öndunarvél,“ segir Kristín. Kom upp hjálpartækjabanka í Mongólíu Kristín tók þátt í mörgum fleiri verkefnum, t.d. um að koma á fót NPA, Notendastýrðri persónulegri aðstoð á Íslandi. Annað verkefni náði síðan langt út fyrir landsteinana. „Á þessum árum á LSH var ég mikið erlendis á ráðstefnum, bæði með erindi og sem þátttakandi og á einni slíkri MND-ráðstefnu í Japan, þá benti formaður MND-félagsins okkur á að lönd eins og Mongólía ættu engin hjálpartæki, engir hjólastólar í landinu þannig að í samvinnu við MND-félagið þá ákváðum við að setja af stað söfnun þar sem við tókum hjálpartæki sem var hætt að nota á Íslandi. Við gerðum samning við Sjúkratryggingar Hvað er skemmtilegast? „Þegar fólk fattar að breytingin sem var innleidd auðveldar þeim lífið og tilveruna.“

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.