Iðjuþjálfinn - 2022, Blaðsíða 44

Iðjuþjálfinn - 2022, Blaðsíða 44
1. tölublað 202244 Lögð er áhersla á að nýta styrkleika og mannauðinn í nærsam- félaginu. Hjá StarfA eru tveir ráðgjafar – auk mín er Íris Lind Sævarsdóttir og fjöldi verktaka en án þeirra væri ekki StarfA. Flestir hafa verið með til fjölda ára. Starfsstöðvarnar eru tvær; á Reyðarfirði og á Egilsstöðum. Markmið StarfA er að veita fyrirmyndarþjónustu á sviði starfsendurhæfingar á Austurlandi. StarfA leggur mikla áherslu á að skapa jákvætt, glaðlegt, hlýlegt og hvetjandi við- mót/andrúmsloft. Þjónustuúrræði Starfsendurhæfing Austurlands býður upp á einstaklings- og hópúrræði. Boðið er upp á mismunandi endurhæfingarleiðir, s.s. mat á stöðu og atvinnutengda einstaklingsmiðaða endur- hæfingu og fjölbreytt stök úrræði. Endurhæfingin miðar að því að þátttakandinn fari í vinnu og/eða nám til að styrkja stöðu sína á vinnumarkaði. Lengd endurhæfingar ræðst af þörf hvers og eins í samráði við Virk Starfsendurhæfingarsjóð/ráðgjafa og annað fagfólk.  Þátttakandinn getur tekið þátt á vinnumarkaði hvenær sem er í ferlinu samhliða endurhæfingu og/eða námi þegar hann er tilbúinn til og hvattur til þess. Leitast er við að mæta einstaklingnum þar sem hann er staddur og meta reglulega framvindu og endurhæfingarþörf í samráði við þátttakandann sjálfan og annað fagfólk sem kemur að endurhæfingu viðkomandi.  Hlutverk ráðgjafa er að sinna stuðningi og eftirfylgd með framvindu endurhæfingar. Aðstoða þátttakandann við að koma auga á lausnir og efla þátttakandann í að ná valdi yfir aðstæðum sínum og lífi. Þörf þátttakenda á fjölbreyttri einstaklingsráðgjöf hefur aukist síðastliðin ár, s.s. fjármálaráðgjöf, fjölskylduráðgjöf, næringarráðgjöf og náms- og starfsráðgjöf til viðbótar við sálfræðimeðferð, félagsráðgjöf, iðjuþjálfun og sjúkraþjálfun. Markþjálfun nýtist einnig mörgum vel.

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.