Iðjuþjálfinn - 2022, Page 34
Iðjuþjálfinn I Fagblað iðjuþjálfa34
Sonja Stelly Gústafsdóttir
deildarformaður
iðjuþjálfunarfræðideildar
Háskólans á Akureyri
Er ekki bara best að taka nema!
Það er vel við hæfi þar sem ég læt af embætti deildarformanns
1. ágúst 2022 að líta bæði um öxl og fram á við. Síðustu tvö
ár hafa eins og allt annað einkennst af áhrifum COVID-19 og
birst m.a. í taugatitringi og óvissu hjá nemendum og starfs-
fólki yfir vettvangsnámi, lotum og námsmati í umhverfi þar
sem fátt gekk upp sem áætlað var. Við stóðum þetta þó allt
af okkur með frábærri samvinnu við ykkur. TAKK. Við erum
nefnilega í þessu saman. Nám í iðjuþjálfun getur ekki orðið
án þátttöku iðjuþjálfa í samfélaginu og öfugt, án náms og
nýliðunar tapast styrkur stéttarinnar.
Áskoranirnar voru líka af ánægjulegri toga því metfjöldi
nemenda hefur innritast í grunnnámið, þriggja ára BS-nám
í iðjuþjálfunarfræði, á síðustu tveimur árum. Árið 2020 voru
samþykktir 75 nýnemar í námið og árið 2021 voru þeir 65.
Umsóknartölurnar fyrir haustið 2022 eru yfir 55. Nemenda-
fjöldinn við deildina hefur margfaldast á síðustu árum. Þetta
eru auðvitað góðar fréttir m.a. í ljósi skorts á iðjuþjálfum víða
í samfélaginu en þetta þýðir líka að nú reynir á áframhaldandi
samstarf okkar, deildar og vettvangs, sem aldrei fyrr því þessir
nemendur þurfa vettvangsnámspláss. Vettvangsnám er stór
hluti af náminu eða 1000 stundir samkvæmt stöðlum Heims-
sambands iðjuþjálfa (World federation of occupational ther-
apists). Alls eru 200 stundir á vettvangi í þriggja ára BS-nám-
inu og 800 í árs starfsréttindanáminu. Að koma svo mörgum
nemendum í nám á vettvangi er því mikil áskorun.
Með breyttri námskrá sem tók gildi árið 2017 var m.a. lögð
áhersla á í starfsréttindanáminu að skapa lærdómssamfélag
milli nemenda, leiðsagnarkennara og vettvangsleiðbeinenda.
Þar koma aðilar saman t.d. í leiðsagnartímum til að deila þekk-
ingu sinni og til að læra og eflast. Þetta er verkefni í þróun en
svörun frá leiðbeinendum á vettvangi hefur verið jákvæð og
bendir til þess að tekist hafi að skapa samfélag þar sem allir
græða á að taka þátt. Hér er því tækifæri fyrir iðjuþjálfa til að
hafa áhrif og láta ljós sitt skína.
Þegar þetta er ritað, í sumarbyrjun 2022, er að verða ár
síðan fyrsti árgangurinn sem lauk 60 eininga námi í iðju-
þjálfun – starfsréttindanámi á meistarastigi útskrifaðist. Það
var stórkostleg stund, sannkölluð uppskeruhátíð og mikið
fagnaðarefni fyrir nemendur, kennara og iðjuþjálfastéttina að
nám í faginu væri nú komið á meistarastig – en ætti að láta
staðar numið hér? Hvað með að stefna enn lengra og setja
markið hærra? Menntunar- og kjaramál eru t.d. nátengd.
Við í iðjuþjálfunarfræðideildinni eigum okkur draum sem við
vonum að fleiri iðjuþjálfar deili með okkur. Draum um enn
hærra menntunarstig iðjuþjálfa á Íslandi og til að ná því er
nú stór hluti starfsfólks deildarinnar í doktorsnámi en reikna
má með að iðjuþjálfum með doktorsgráðu fjölgi um a.m.k.
fimm á næstu 1–3 árum. Það eru spennandi tímar framundan.
Við deildina verður einnig fetuð ótroðin slóð í haust þar sem
Sigrún Kristín, Kittý, tekur við af mér sem deildarformaður en
hún býr í Kanada. Heimsfaraldurinn fékk okkur nefnilega til að
hugsa ýmislegt upp á nýtt, m.a. um helgun í starfi og stað-
setningu. Og þið vitið, allt sem heyrist að sé ómögulegt að
framkvæma er sem olía á eldinn hjá iðjuþjálfum!
Það er dýrmætt og ekki sjálfgefið að tilheyra vinnustað, deild
og stétt sem ég er stolt af. Að vinna á hverjum degi með fólki
sem brennur fyrir menntun og störfum iðjuþjálfa. Vöxturinn
og krafturinn er ljós og næg tækifæri framundan. Við höfum
unnið að því að uppfæra á heimasíðu Iðjuþjálfafélagsins upp-
lýsingar um „Nám í iðjuþjálfun“ og m.a. um kosti þess að vera
vettvangsleiðbeinandi og hvert áhugasamir geta snúið sér.
Verkefnastjórar vettvangsnáms eru tveir; Hafdís Hrönn sér um
BS-námið og Hulda Þórey um starfsréttindanámið. Þar sem
við erum í þessu saman … er þá ekki bara best að taka nema?
Að lokum óska ég nýútskrifuðum iðjuþjálfum innilega til
hamingju með áfangann. Það hefur verið sönn ánægja að
fylgja ykkur síðustu fjögur árin í náminu og hver sá staður sem
fær að njóta starfskrafta ykkar í framtíðinni er heppinn!
Aðsend grein: