Iðjuþjálfinn - 2022, Blaðsíða 38
Iðjuþjálfinn I Fagblað iðjuþjálfa38
Hafdís Hrönn Pétursdóttir
verkefnastjóri vettvangsnáms í iðjuþjálfunarfræði
Hulda Þórey Gísladóttir
verkefnastjóri vettvangsnáms í iðjuþjálfun
Nám á vettvangi
– iðjuþjálfunarfræði og iðjuþjálfun
Iðjuþjálfunarfræði
Nemendur í iðjuþjálfunarfræði til BS-gráðu fara í vettvangs-
heimsóknir á öllum þremur námsárunum en þær eru hluti af
sex námskeiðum. Nemendurnir fara oftast í heimsóknir á vett-
vang tveir til þrír saman. Í námskeiðunum Inngangur að iðju-
þjálfunarfræði og Þjónustuferli og fagleg rökleiðsla 1 og 2 fara
nemendur á staði þar sem iðjuþjálfar starfa. Í námskeiðunum
Þjónusta og vettvangur og Félagslegt umhverfi, stuðningur
og tengsl kynnast nemendur hins vegar fjölbreyttum stöðum
sem tengjast velferðarþjónustu í íslensku samfélagi.
Á staðnum heldur tengiliður nemenda utan um heimsóknina.
Hlutverk hans er að sjá um að nemendurnir fái viðeigandi
námstækifæri í heimsóknunum. Hann sér um að skipuleggja
heimsóknina og vera í tengslum við nemendurna og verk-
efnastjóra vettvangsnáms eftir því sem við á.
Vettvangsnám og vettvangsheimsóknir eru mikilvægur hluti af námi nemenda við iðjuþjálfunarfræðideild HA. Nú
þegar umsóknum um nám við deildina hefur fjölgað verulega þarf að huga að fjölgun iðjuþjálfa í hlutverki tengiliða og
leiðbeinenda – en hvernig förum við að því? Iðjuþjálfunarfræðideildin hefur í gegnum árin verið í góðri samvinnu við
starfandi iðjuþjálfa sem hafa leiðbeint nemendum en við viljum gera enn betur.
Dagný Þóra Baldursdóttir, iðjuþjálfi á Reykjalundi
Það er mikilvægt fyrir mig sem fagmann að vera í tengslum við
háskólasamfélagið og leggja mína þekkingu og reynslu á vogar-
skálarnar. Ég tel það einnig efla mig sem einstakling að vera
hluti af að leiðbeina og gefa af mér til komandi iðjuþjálfa. Ég
legg mig fram um að vera jákvæð fyrirmynd og miðla af mér til
nema, bæði sem einstaklingur og iðjuþjálfi.
Það er hagur bæði fyrir mig og vinnustað minn að fá að
fylgjast með faglegri þróun í iðjuþjálfanáminu. Auk þess nýtur
vinnustaður minn góðs af að komandi iðjuþjálfar fái kynningu
á starfinu sem þar fer fram. Því fleiri námstækifæri fyrir nema á
ólíkum starfsvettvangi iðjuþjálfa, því betra.
Mínar helstu hindranir í að taka nema eru tengdar starfshlut-
falli mínu. Það er ákveðin áskorun að komast yfir öll verkefnin
í hlutastarfi. Þau skipti sem ég hef tekið nema hefur það aukið
minn faglega og persónulega þroska og algjörlega verið þess
virði. Ég hvet alla iðjuþjálfa til að stíga skrefið og prófa að taka
nema, það er lærdómur fólginn í því fyrir þig sem einstakling,
skjólstæðinga þína og vinnustað þinn.
Erna Kristín Sigmundsdóttir, iðjuþjálfi hjá HSN
Mér fannst ég ekki geta boðið nema pláss þegar ég fékk fyrst
tölvupóst frá HA. Mér fannst ég ekki hafa nægilega góða
aðstöðu, ekki nóg að bjóða og bjó til endalausar afsakanir þar
til ég áttaði mig á að ég sjálf var stærsta hindrunin. Ég ákvað að
láta slag standa, sagði já og í stuttu máli sagt þá gekk þetta
vonum framar. Ég fann að óöryggið hvarf þegar við sátum
saman og ræddum íhlutun og aðferðir og ég gat miðlað reynslu
minni af vinnu með skjólstæðingum.
Ég fann að rökleiðslan, sem svo rík áhersla var lögð á í náminu,
rann áfram viðstöðulaust og það sköpuðust afar fróðlegar og
skemmtilegar umræður. Ég sá á svip nemans þegar hlutirnir
fóru að smella saman og hún fór að sjá allt sem hún hafði verið
að þræla sér í gegnum í skólanum raðaðist saman í eina heild.
Mér þótti gaman að sjá þetta gerast og vera hluti af því að nem-
inn tengdi saman fræðin og vinnuna. Ég man þegar ég var á
sama stað í mínu síðasta verknámi og mér finnst mikilvægt að
við sem leiðbeinendur gerum nemum það kleift.
Um leið var þetta góð leið til þess að rifja ýmislegt úr náminu
upp, auk þess sem ég gat nálgast gögn og tæki frá HA sem ég
hefði annars ekki getað gert. Ég fór út fyrir þægindarammann
en nú finnst mér ég vera öflugri iðjuþjálfi, meðvitaðri um það
sem er að gerast í fræðunum og hef enn meira sjálfstraust til
þess að láta í mér heyra.
Frá Háskólanum
á Akureyri :