Iðjuþjálfinn - 2022, Side 46
1. tölublað 202246
aldrei verið eins mikilvægt og nú að halda í tengslin og verja
tíma í náttúrunni. Tengslin við náttúruna snúast líka um að
gefa til baka, það kemur þegar við verjum tíma í náttúrunni,
þá förum við að bera meiri virðingu fyrir henni, hlúa að henni
og umhverfisvitundin eykst.
Árið 2019 sótti ég Evrópuráðstefnu í náttúrumeðferðarfræði
í Schwangau í Þýskalandi ásamt Hildi Bergsdóttur félags-
ráðgjafa og fleiru góðu fólki. Sama ár stóðu samtök áhuga-
fólks um náttúrumeðferð á Íslandi (NÚM), þar sem Harpa Ýr
Erlendsdóttir er í fararbroddi, fyrir námskeiði í Þórsmörk sem
bar heitið Exploring key elements of adventure therapy in
Icelandic nature. Í framhaldi ákváðum við Hildur að bjóða upp
á náttúrumeðferðarúrræði á Austurlandi.
Það er ætlað ungu fólki 18–25 ára sem vill taka ábyrgð og stjórn
á eigin lífi, kynnast eigin styrkleikum, tækifærum og er tilbúið
að leggja á sig. Það byggir á hugmyndafræði reynslunáms (e.
experiential learning) auk fjölbreyttrar meðferðarnálgunar
sem miðar að sjálfsskoðun og sjálfslærdómi í hóp.
Í reynslunámi er lærdómur fólginn í að framkvæma athafnir,
reyna nýjar upplifanir á eigin skinni og fikra sig utan marka
þess sem telst þægilegt og öruggt. Meðferðin fer fram úti í
náttúrunni sem hjálpar til við að skapa öruggt umhverfi og efla
núvitund, fjarri ys og þys daglegs lífs.
Þar hafa þátttakendur möguleika til að takast á við skemmti-
legar áskoranir og verkefni, öðlast nýja reynslu og auka þannig
sjálfsþekkingu sína. Sú reynsla sem skapast getur þannig nýst
þeim til að takast á við flóknar aðstæður í daglegu lífi í því
krefjandi samfélagi sem við búum í.
Verkefnin reyna á tilfinningalega, líkamlega og vitræna getu
þátttakenda og hafa það markmið að bæta upplifun þeirra á
sjálfum sér, efla seiglu og trú á eigin getu. Í þessu lærdómsferli
felst ígrundun á eigin sýn og tilfinningar, endurskoðun á eigin
gildum, viðhorfum og hegðun.
Þátttakendur eru studdir til að koma auga á tækifæri til að
auka færni og þekkingu og yfirfæra lærdóminn á daglegt
líf. Hópurinn sjálfur er stór hluti af meðferðinni þar sem hún
byggir á jafningjastuðningi, samvinnu, tilfinningunni að til-
heyra og tjá upplifun og líðan.
Meðferðarúrræðið telur 12 vikur og byggist á vikulegum nátt-
úrufundum þar sem hópurinn fer út í óspillta náttúru og vinnur
ýmis verkefni. Í lok viknanna 12 verður farið í 5–7 daga ferð
í óbyggðir. Þátttakendur fá eftirfylgdarviðtöl til að styðja við
yfirfærslu nýfenginnar þekkingar og færni á daglegt líf og
endurmat á eigin stöðu. Því miður hefur COVID-19 haft áhrif á
áformin en við munum fara af stað með hóp í haust.
Heimasíða: www.starfa.is
Facebook: Starfsendurhæfing Austurlands
Takk fyrir mig